Búðarhálsvirkjun gefi af sér arð strax frá upphafi 5. maí 2010 05:30 Búðarhálsvirkjun. Unnið er að fjármögnun virkjunarinnar við erfiðar aðstæður á markaði og viðræður um endurskoðun orkusölusamnings við RioTintoAlcan, sem rekur álverið í Straumsvík, standa nú yfir. Myndin er tekin á kynningu Landsvirkjunar í febrúar en þar var Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.
Fréttaskýring: Hvernig gengur Landsvirkjun að fjármagna Búðarhálsvirkjun? „Þetta er puð,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, um stöðu og horfur í fjármögnunarmálum fyrirtækisins. Fjármögnun Búðarhálsvirkjunar er ólokið og endanlegur orkusölusamningur liggur ekki fyrir þótt framkvæmdir séu hafnar. Hörður segir að fyrirtækið komi ekki að luktum dyrum á erlendum fjármagnsmörkuðum en „dyrnar eru heldur ekki galopnar“. Hann segist vongóður um að lausn finnist og fjármögnun ljúki svo hægt verði að bjóða út næstu áfanga framkvæmda við virkjunina. „Það eru ýmsir möguleikar sem við erum að vinna að með lífeyrissjóðum og fjölmörgum bönkum,“ segir Hörður. Vextir verði sjálfsagt fyrst í stað hærri en var árin 2006-2008. Ekki verði þó gerðir samningar sem byggist á öðru en því að Búðarhálsvirkjun gefi af sér arð frá upphafi. Lífeyrissjóðirnir hafa gefið vilyrði um þátttöku í fjármögnun innlends kostnaðar vegna Búðarhálsvirkjunar, að sögn Arnars Sigurmundssonar, formanns Landssambands lífeyrissjóða. Sá kostnaður nemur um 10 milljörðum. Viðræður hafa þó ekki átt sér stað frá því fyrir áramót, segir Arnar. Þær hefjist á ný þegar fjármögnun erlends kostnaðar er lokið og samningur um langtímasölu á orku liggur fyrir. Landsvirkjun og RioTintoAlcan (RTA) eiga enn í viðræðum um kaup og sölu á raforku frá Búðarhálsvirkjun. Ráðgert hefur verið að nýta orkuna þaðan til þess að auka straum í álverinu í Straumsvík en þannig má auka framleiðslugetu um allt að 45.000 tonn af áli á ári. Hvorki Hörður né Ólafur Teitur Guðnason, framkvæmdastjóri samskiptasviðs RTA á Íslandi, vildu tjá sig um stöðu og gang mála í samningaviðræðunum. Landsvirkjun greindi frá því á vef sínum í ágúst 2008 að viðræðum væri lokið með samkomulagi um orkusölu sem tryggði rekstur álversins til 2027. Spurður hvers vegna viðræður hófust að nýju sagði Hörður að fyrirvarar um fjármögnun, samþykki stjórnar og fleira hefðu ekki verið uppfylltir og gagnkvæmur skilningur hefði verið á því að nýjar viðræður væru nauðsynlegar. Landsvirkjun hefði haft frumkvæði að þeim. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Fleiri fréttir Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Sjá meira