Innlent

Skjálftahrina á Reykjaneshrygg

MYND/Veðurstofa Íslands

Nokkrir skjálftar hafa riðið yfir á Reykjaneshrygg frá því í gær. Hrinan hófst með skjálfta sem mældist 3,1 stig um klukkan þrjú í gær og strax í kjölfarið fylgdu skjálftar sem mældust nokkru minni eða um 2,5 stig. Skjálftarnir eiga upptök sín nálægt Eldey og Geirfuglaskeri og frá því klukkan þrjú í gær hafa sex skjálftar mælst stærri en tvö stig á svæðinu, þar á meðal einn sem náði þremur stigum, auk nokkurra minni.

Á Veðurstofunni fengust þær upplýsingar að skjálftar á þessu svæði séu alvanalegir og því ekki tímabært að leggja eitthvað út af þessari hrinu eins og er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×