Aldrei eins mikil umferð á íslenska flugstjórnarsvæðinu 8. maí 2010 20:54
Mikill straumur flugvéla hefur verið inn á íslenska flugstjórnarsvæðið í dag og síðustu nótt, búist er við áframhaldandi mikilli umferð í nótt og á morgun. „Vegna umferðarinnar sem er í meira lagi óvenuleg vegna umfangs og flækjustigs hefur mönnun á flugumferðarstjórum tvöfaldast í dag og voru tuttugu og tveir á vaktinni í þegar mest var að gera," segir í tilkynningu frá Isavia (áður Flugstoðir). Á venjulegum degi eru um 8-10 manns sem sinna flugumferðinni á íslenska svæðinu sem er eitt stærsta úthafssvæði heims. Ásgeir Pálsson framkvæmdarstjóri flugumferðarsviðs Isavia sem hóf störf árið 1975 sem flugumferðarstjóri, segist ekki ekki hafa upplifað álíka stöðu í flugmálum allan þann tíma sem hann hefur starfað við þau. „Það hafa komið upp atburðir sem hafa haft töluverð áhrif eins og t.d. 11.sept 2001 þegar loftrými Bandaríkjanna var lokað. Þá þurfti að snúa við eða breyta flugleiðum flugvéla sem voru á leið til Bandaríkjanna og koma þeim á nýja áfangastaði. En sú atburðarrás stóð í nokkrar klukkustundir ólíkt þessu ástandi sem núna er þegar við sjáum fram á að umferðin um íslenska flugstjórnarsvæðið mun halda áfram að vera mikil í nótt og á morgun." Askan lokar stórum hluta Norður-AtlantshafsFlugumferðin eins og hún var um klukkan 16 í dag.Ásgeir bendir á að í upphafi Eyjafjallagossið þá lokaði loftrýmið við flesta flugvelli í Norður Evrópu og þess vegna var lítil flugumferð á Norður Atlantshafinu, „en nú þegar flugumferðin í Evrópu er nokkuð eðlileg og flestir flugvelli eru opnir lokar öskumagnið stórum hluta Norður Atlantshafsins og þá er síbreytilegt hvernig koma skal umferðinni yfir hafið og er ástandið í þeim málum mjög ólíkt venulega ástandi og því eru t.d. mönnun flugstjórnarmiðstððvarinnar gjörólík því sem hún er annars." Eftir daginn kemur í ljós hvað margar flugvélar komu inn á svæðið en ljóst er að þær eru óvenjumargar. „Þriggja til fjögurra klukkutíma tafir á flugumferð á Norður Atlantshafinu hafa orðið vegna öskunnar í háloftunum í dag þar sem flugstjórnarsvæðið hefur ekki annað flugumferðinni. Allt millilandaflug á Íslandi fer nú um Akureyrarflugvöll og er búist við að sama verði upp á teningnum á morgun, einnig er Egilsstaðaflugvöllur til taks ef með þarf."
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Fleiri fréttir Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Sjá meira