Fjármagnsflutningar til Lúx meðal annars til rannsóknar 8. maí 2010 18:30
Hundrað milljarðar króna voru millifærðir úr sjóðum Kaupþings inn á erlenda bankareikninga skömmu fyrir hrun. Fjármagnsflutningarnir frá móðurfélagi bankans hér á landi til Lúxemborgar og annarra landa teygja anga sína inn í rannsókn sérstaks saksóknara. Yfirheyrslur hafa staðið yfir í dag. Rannsókn á meintum lögbrotum stjórnenda Kaupþings er í fullum gangi en sérstakur saksóknari hyggst yfirheyra fjölda manns á meðan þeir Hreiðar Már og Magnús Guðmundsson, tveir af æðstu stjórnendum fallna bankans, sitja í gæsluvarðhaldi. Til stendur að yfirheyra Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann bankans og samstarfsmenn Hreiðars og Magnúsar sem taldir eru geta varpað skýrara ljósi á meint sakarefni. Samkvæmt heimildum fréttastofu var Magnús sóttur á Litla-Hraun í dag og hann yfirheyrður. Litlar skýringar í gögnum bankans Fréttastofa sagði frá því skömmu eftir bankahrun að hundrað milljarðar hafi verið millifærðir úr sjóðum Kaupþings inn á erlenda bankareikninga rétt fyrir hrunið, aðallega til Lúxemborgar. Litlar skýringar voru á þessum millifærslum í gögnum bankans og vöktu þær á sínum tíma athygli skilanefndarinnar. Hreiðar Már og Sigurður Einarsson hafa ávallt neitað því að peningar hafi runnið úr sjóðum bankans rétt fyrir hrun. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru millifærslurnar meðal þess sem sérstakur saksóknari rannsakar - en þær teygja anga sína inn í ýmis mál sem til skoðunar eru hjá embættinu. Hluti af umræddum millifærslum munu vera lán til eignarhaldsfélaga sem keyptu hlutabréf í bankanum og skuldatryggingar á bankann, en þar leikur grunur á stórfelldri markaðsmisnotkun og eftir atvikum sýndarviðskiptum.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Fleiri fréttir Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Sjá meira