Yfirheyra þarf tugi manna áður en varðhaldinu lýkur 8. maí 2010 07:00 Úrskurðaðir í varðhald. Hreiðar Már og Magnús munu verða í einangrunarklefum á Litla-Hrauni fram yfir helgi hið minnsta. Þá mun Hæstiréttur taka afstöðu til kæru tvímenninganna.Fréttablaðið/Anton
Sérstakur saksóknari hyggst nýta tímann sem Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjórar Kaupþings, sitja í gæsluvarðhaldi til að yfirheyra alla þá sem tengjast meintum lögbrotum tvímenninganna. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru þeir, sem talið er mjög brýnt að ná tali af áður en gæsluvarðhaldið rennur út, á þriðja tug, bæði sakborningar í málunum og vitni sem talin eru geta varpað frekara ljósi á málið. Þeirra á meðal eru aðrir fyrrverandi stjórnendur úr Kaupþingi; þeir Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður, Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi, og Steingrímur P. Kárason, fyrrverandi framkvæmdastjóri áhættustýringar bankans. Sigurður er búsettur í London en Ingólfur og Steingrímur í Lúxemborg og hafa þar rekið ráðgjafarfyrirtækið Consolium með Hreiðari Má. Þremenningarnir hafa allir verið boðaðir í yfirheyrslur hérlendis í næstu viku en hugsanlegt er að þeim verði flýtt í ljósi atburða síðustu daga. Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær að sérstakur saksóknari hefði þegar farið þess á leit við Sigurð að hann flýtti komu sinni til landsins en að hann hefði ekki sinnt þeim boðum. Hreiðar og Magnús voru báðir úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær, Hreiðar í tólf daga og Magnús í sjö daga. Þeir kærðu báðir úrskurðina til Hæstaréttar, sem kveður upp dóma eftir helgi. Þangað til dvelja bankastjórarnir fyrrverandi í einangrun á Litla-Hrauni. Ástæða varðhaldsins er grunur um stórfellda markaðsmisnotkun í starfsemi Kaupþings mánuðina fyrir hrun. Hún fór þannig fram að bankinn lánaði félögum, meðal annars á vegum sjeiks Al-Thani frá Katar, Skúla Þorvaldssonar og Kevins Stanford, háar upphæðir til að kaupa hlutabréf í bankanum. Þannig var komið í veg fyrir að gengi bréfa í bankanum félli. Alls námu þessi vafasömu viðskipti Kaupþings hátt í hundrað milljörðum. Inn í þetta fléttast önnur meint lögbrot, svo sem umboðssvik og skjalafals. Sérstakur saksóknari rannsakar jafnframt mál af öðrum toga tengd Kaupþingi en þau liggja ekki beinlínis til grundvallar gæsluvarðhaldinu, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, þótt ekki sé útilokað að einnig verði yfirheyrt vegna þeirra á næstunni. stigur@frettabladid.is Sérstakur saksóknari kaupþing ólafur Hauksson. Magnús Guðmundsson Hreiðar Már Sigurðsson gæsluvarðha Sigurður Einarsson Ingólfur Helgason Steingrímur P. Kárason
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Innlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent Vill afnema sektir við vændiskaupum Innlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent Fleiri fréttir Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Sjá meira