Lífið

Hayek var ólögleg

Leikkonan Salma Hayek segist hafa upplifað mikla fordóma í sinn garð fyrst þegar hún kom til Hollywood. nordicphotos/getty
Leikkonan Salma Hayek segist hafa upplifað mikla fordóma í sinn garð fyrst þegar hún kom til Hollywood. nordicphotos/getty
Leikkonan Salma Hayek viðurkennir í viðtali við tímaritið V Magazine Spain að hún hafi verið ólöglegur innflytjandi í Bandaríkjunum fyrst þegar hún kom til landsins.

„Ég var ólögleg í landinu fyrst um sinn. Þetta varði aðeins í stuttan tíma, en ég var ólögleg þrátt fyrir það.“ Leikkonan hefur náð langt síðan þá og leikið í mörgum vinsælum kvikmyndum og framleitt hina vinsælu sjónvarpsþætti Ugly Betty. Hún segir lífið í Hollywood þó ekki alltaf hafa verið dans á rósum.

„Ég upplifði gríðar­lega kynþáttafordóma fyrst þegar ég kom til Hollywood. Bandarískir leikstjórar og framleiðendur virtust ekki geta ímyndað sér að leikkona frá Mexíkó gæti borið aðalhlutverk kvikmyndar.“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.