Hvíldi kreditkortið þessi jól 27. desember 2010 03:00 Baldvin Z leikstýrir nýjum sjónvarpsþáttum sem kenna fólki fjármálalæsi. Þættirnir verða sýndir í Sjónvarpinu í byrjun næsta árs.fréttablaðið/valli „
Þetta eru eiginlega fræðsluþættir um fjármál heimilanna, nema að reynt er að fjalla um efnið á mannamáli svo að allir skilji,“ segir leikstjórinn Baldvin Z um sjónvarpsþættina Ferð til fjár sem sýndir verða í Sjónvarpinu í byrjun næsta árs. Í þáttunum verður fjallað um svokallað fjármálalæsi og verða ýmis hugtök og efni tengd fjármálum útskýrð á þann hátt að áhorfandinn hljóti dýpri skilning á efninu. „Það er algengt að fólk sitji og horfi á fréttir sem fjalla um fjármál en skilji ekki við hvað er átt. Þættirnir eiga í grunninn að útskýra orð og hugtök og í leiðinni kenna fólki hvernig megi nýta peningana betur,“ útskýrir Baldvin, sem vinnur þættina í samstarfi við Breka Karlsson og Steinunni Þórhallsdóttur, en hann rekur stofnunina Fjármálalæsi á Íslandi. Í þáttunum eru meðal annars ýmsir aðilar fengnir til þess að reikna út hvað þeir kosta og þeirra á meðal voru útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson, leikarinn Björgvin Franz Gíslason og sjónvarpskonan Þóra Arnórsdóttir auk nokkurra menntskælinga og þingmanna. „Þetta var mjög forvitnilegt því fólk kemst oft að því að það kostar meira en það heldur. Andri Freyr var á meðal þeirra sem kostuðu minnst, ég tók líka prófið í gamni og komst að því að ég var langdýrastur af öllum en það var fartölvunni minni að kenna. Hún sprengdi allan skalann,“ segir Baldvin og hlær. Aðspurður segist hann hafa lært ýmislegt við gerð þáttanna og ákvað meðal annars að hvíla kreditkortið fyrir jólin í ár. „Þetta var mun auðveldara en ég hafði ímyndað mér og nú þarf ég ekki að kvíða janúarmánuði, aldrei þessu vant. Svo er bara að bíða og sjá hvort maður haldi þetta út allt næsta ár,“ segir hann að lokum.- sm
Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira