Pabbi ánægður að ég fái að leika Jón Grindvíking 15. mars 2010 04:00 Ilmur Kristjánsdóttir fer í skó Lárusar Pálssonar og leikur Jón Grindvíking í uppfærslu Þjóðleikhússins á Íslandsklukkunni eftir Halldór Laxness. Fréttablaðið/Anton „
Mér líst mjög vel á þetta, það verður mjög gaman að takast á við þetta hlutverk,“ segir Ilmur Kristjánsdóttir. Hún hefur tekið að sér hlutverk Jóns Grindvíkings í uppfærslu Þjóðleikhússins á Íslandsklukku Halldórs Laxness. Leikstjórinn Benedikt Erlingsson tekur óneitanlega mikla áhættu með þessu leikaravali sínu því Jón Grindvíkingur er sögulegur í íslenska leikhúsheiminum eftir að Lárus Pálsson fór á kostum í hlutverkinu og gerði það nánast ódauðlegt. Ilmur gerir sér vel grein fyrir þeirri pressu sem fylgir þessu hlutverki. „Ég fór einmitt á Þjóðar-bókhlöðuna nýverið og fór að lesa ævisöguna hans Lárusar, rak þá augun í glefsur úr dómum sem birtust eftir frumsýninguna sem voru einróma lof. Á meðan ég var að glugga í þetta þá áttaði ég mig á því að Guðjón Pedersen, fyrrum leikhússtjóri í Borgarleikhúsinu, stóð fyrir aftan mig og var að lesa yfir öxlina á mér en hann lék líka þetta hlutverk,“ segir Ilmur sem er hvergi bangin þótt hún sé þarna að leika karl. „Ég las Íslandsklukkuna þegar ég var sextán ára og mundi ekkert sérstaklega eftir þessum karakter. En ég hef lært ýmsilegt um hann, Hann var mikið bókanörd og bjargaði handriti sem brann með því að skrifa það upp eftir minni,“ segir Ilmur og viðurkennir um leið að hún sé sjálf ekki mikið bókanörd. „Nei, ég er svona „wannabe“ bókanörd, ég er alltaf að bíða eftir ró og friði til að sinna því áhugamáli,“ segir leikkonan sem hefur nú tekið sér frí frá guðfræðináminu um stundarsakir. „Allavega þetta ár og kannski það næsta. En maður er ekki búinn að loka neinum dyrum með þetta, sem betur fer.“ Ilmur segist hafa leikið mörg hlutverk um ævina, meðal annars sjálfa Sölku Völku úr samnefndri bók nóbelskáldsins. „En ég held að ég hafi aldrei séð pabba minn eins glaðan og þegar ég sagði honum að ég ætti að leika Jón Grindvíking. Hins vegar brá samkennara hans við Fjölbrautaskólann á Akranesi svolítið, íslenskukennaranum, og áréttaði mjög alvarlegur að það mætti alls ekki gera grín að honum,“ segir Ilmur. Frumsýnt verður 21. apríl næstkomandi en með önnur hlutverk í sýningunni fara þau Lilja Nótt Þórarinsdóttir sem er sjálf Snæfríður Íslandssól og Ingvar E. Sigurðsson sem leikur Jón Hreggviðsson. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira