Tekur myndir í miðbænum og hengir upp í verslunum 15. júní 2010 06:00 Halla Einarsdóttir stendur fyrir verkefninu Augnablik sem er á vegum Listhópa Hins hússins. Myndir hennar birtast bæði á vefsíðu verkefnisins og í gluggum tuttugu verslana á Laugavegi.
Á meðal Listhópa Hins hússins er verkefnið Augnablik, en að því stendur áhugaljósmyndarinn Halla Einarsdóttir. Í sumar mun Halla taka ljósmyndir af fólki í miðbæ Reykjavíkur og fanga ýmis sumarleg augnablik. Hún mun svo hengja myndirnar upp í gluggum verslana við Laugaveg og skapa með því skemmtilega stemningu á götum borgarinnar. „Ég er búin að taka myndir markvisst í um þrjú ár og með hverju árinu verður þetta minna og minna áhugamál og meira af alvöru og nú stefni ég á áframhaldandi ljósmyndanám eftir stúdentspróf," segir Halla sem hefur stundað ljósmyndanám við Myndlistaskóla Reykjavíkur samhliða stúdentsnámi við Kvennaskólann. Innt eftir því hvernig hugmyndin að verkefninu hafi komið til segist hún hafa verið spennt fyrir starfi Listhópa Hins hússins og ákveðið að sækja um. „Mér fannst þetta spennandi og þegar ég var að reyna að finna sniðugt verkefni kom ekkert annað til greina en að taka ljósmyndir," segir Halla, sem hefur nú myndað á götum borgarinnar í heila viku. „Ég fæ skriflegt leyfi frá fólki um að ég megi taka myndir af því og birta á Netinu og í gluggum verslana. Fólk tekur furðuvel í það að láta mynda sig og hingað til hefur aðeins ein kona sagt nei, þannig að þetta hefur farið fram úr mínum björtustu vonum." Myndirnar eru birtar samdægurs á heimasíðu verkefnisins, augnabliksumarsins.blogspot.com, auk þess sem þær verða til sýnis aðra hverja viku í allt sumar í gluggum ákveðinna verslana við Laugaveg. - sm
Mest lesið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlist Frægustu mágar landsins Lífið Fleiri fréttir Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Sjá meira