Leikna íslenska efnið stendur upp úr 8. október 2010 07:00 Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri sjónvarpssviðs, segir Stöð 2 ætla að halda áfram að framleiða vandað leikið íslenskt efni. „
Án þess að ég geti svarað fyrir alla held ég að framleiðsla leikins íslensk efnis, sem hefur verið áberandi á dagskrá Stöðvar 2 frá árdögum, hljóti að standa upp úr,“ segir Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri dagskrársviðs 365 miðla. Stöð 2 fagnar á laugardaginn 24 ára afmæli sínu og ætlar af því tilefni að bjóða upp á veglega dagskrá í ólæstri útsendingu frá föstudagskvöldi og þar til Spaugstofunni lýkur á laugardagskvöldinu. Ísland í dag, Logi í beinni og Auddi og Sveppi ætla að fjalla um ævi afmælisbarnsins, hver með sínu nefi en til gamans má geta að tíu ár eru liðin frá því 70 mínútur með þeim Jóa og Simma fóru í loftið. En þeir Auddi og Sveppi ætla að beina sjónum sínum að þeirri sögu. Hálfgerð bylting varð í framleiðslu leikins efnis fyrir sex árum. Og slík dagskrárgerð fór úr því að verða einstakur viðburður í að verða nánast jafn sjálfsagður hlutur og amerískt afþreyingarefni. „Við vissum alltaf að leikið íslenskt sjónvarpsefni væri vinsælt. Á þessum tíma sköpuðust aðstæður, meðal annars með aðkomu Kvikmyndamiðstöðvar, til að ráðast í svona þáttaraðir,“ útskýrir Pálmi en árið í ár verður engin undantekning; Mér er gamanmál, Spaugstofan, Steindinn okkar, Hlemmavídeó og Pressa, svo eitthvað sé nefnt. Hins vegar fer lítið fyrir umfangsmiklum raunveruleikaseríum eins og oft hefur verið hefð fyrir. „Staðan er bara þannig að allir „dagskrártímar“ eru uppteknir fyrir leikið efni, tíðarandinn kallar bara á slíkt.“ - fgg
Mest lesið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Fleiri fréttir Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Kynlíf á ekki að vera vont Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Catherine O'Hara er látin Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa „Ég er femínisti“ Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Djammaði með feðgunum Kára og Agli Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Sjá meira