Glerlaufin í Bygggörðum 22. apríl 2010 07:00 leiklist Breski höfundurinn Philip Ridley á að baki fjöskrúðugan feril en þetta er fyrsta verk hans sem sýnt er hér á landi.
Norðurpóllinn er leikrými sem ungt leikhúsfólk af höfuðborgarsvæðinu hefur komið í nýtingu yst á Seltjarnarnesi en þar hefur ekki verið boðið til leiksýninga atvinnuhópa um langt skeið. Norðurpóllinn er í Bygggörðum og er vandlega merktur sem er nauðsynlegt því næstu daga verða þar frumsýnd tvö ný erlend verk af tveimur sjálfstæðum leikhópum. Alheimur frumsýnir á laugardag Glerlaufin eftir Austur-Lundúnabúann Philip Ridley og á sunnudag frumsýnir Fátæka leikhúsið Tvo fátæka pólskumælandi Rúmena eftir Dorota Maslowsk, einn athyglisverðasta höfund Pólverja í dag. Glerlaufin, sem er frumsýnt á laugardag, er öflugt breskt nútímaleikrit eftir hinn margrómaða höfund Philip Ridley. Hann hefur skrifað fjölda leikrita og hlotið fjölmörg verðlaun fyrir skrif sín en hann hefur lagt gjörva hönd á margt: hefur skrifað mikinn fjölda leikrita, smásagna, bóka og kvikmyndahandrita og hefur hann hlotið fjölmörg verðlaun fyrir skrif sín. Glerlaufin voru frumsýnd árið 2007 í Soho Theatre í London. Þar fékk verkið frábærar viðtökur og mjög svo lofsamlega dóma. Fleiri verk eftir Ridley eru til dæmis Pitchfork Disney, The Fastest Clock in the Universe og Mercury Fur. Verkið fjallar um tvo ólíka bræður, Steven og Barry. Steven fetar beinu brautina og á hið fullkomna heimili. Barry er svarti sauður fjölskyldunnar, drykkfelldur listamaður sem hefur valdið móður þeirra sárum vonbrigðum. Þó segir yfirborðið ekki allt, því þegar kafað er dýpra birtast draugar fortíðar og þaggaður sannleikurinn sem er of sársaukafullur til að þola dagsljósið. Hvað er satt og hvað er logið? Hver er saklaus og hver er sekur? Hvert er leyndarmál glerlaufanna? Leikstjóri Glerlaufanna er Bjartmar Þórðarson og leikarar eru Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Jóel Sæmundsson, Ólafur S.K. Þorvaldz og Vigdís Másdóttir. Tónlist er í höndum Védísar Hervarar og ljósahönnuður er Arnar Ingvarsson. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Í festival gír með Icewear Lífið samstarf Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ Lífið samstarf Bylgjulestin brunar á Flúðir Lífið samstarf Fleiri fréttir Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Sjá meira