Lífið

Djörf Ilmur vekur athygli

Ilmur Kristjánsdóttir í hlutverki Heddu Gabler í samnefndu leikriti Þjóðleikhússins.
Ilmur Kristjánsdóttir í hlutverki Heddu Gabler í samnefndu leikriti Þjóðleikhússins.

Kynningarmyndir af Ilmi Kristjánsdóttur í hlutverki Heddu Gabler í samnefndu leikriti sem verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í mars hafa vakið mikla athygli.

Myndirnar af Ilmi eru djarfari en íslenskir leikhúsgestir eiga að venjast, enda er hlutverkið þess eðlis. Verkið, sem er eftir Henrik Ibsen, er frá 19. öld og fjallar um Heddu Gabler sem er nýgift og býr í flottu einbýlishúsi. Fjótlega missir hún tökin á tilverunni með ófyrirséðum afleiðingum. Til stendur að fara óhefðbundnar leiðir við kynningu verksins og svo gæti farið að myndirnar af Ilmi verði meðal annars hengdar upp í tískubúðum borgarinnar.

Hlutverk Heddu Gabler er mjög eftirsótt meðal leikkvenna og hefur því verið lýst sem kvenkyns útgáfunni af Hamlet. Kemur því ekki á óvart að margar af þekktustu leikkonum heimsins hafa farið með hlutverk Gabler í gegnum tíðina. Nægir þar að nefna Ingrid Bergman, Cate Blanchett, Judy Davis og Annette Bening. Núna hefur Ilmur bæst í þeirra hóp.

Ilmur mun standa í ströngu á þessum leikvetri í. Því hún fer með aðalhlutverkið í öðru stóru verki, Fólkið í kjallaranum, sem er byggt á samnefndri bók Auðar Jónsdóttur. Fyrir vikið þarf hún að hætta leik sínum sem Jón Grindvíkingur í Íslandsklukkunni en það fer aftur á fjalirnar í Þjóðleikhúsinu á næstunni með Brynhildi Guðjónsdóttur í hlutverki Grindvíkingsins.- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.