Innlent

Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu

Þrír voru fluttir á sjúkrahús með minniháttar meiðsl eftir að fólksbíll valt á þjóðveginum norðan við Akureyri um þrjúleitið í nótt. Fimm ungmenni fædd árið 1992 voru í bílnum. Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum en mikil hálka er á svæðinu, að sögn lögreglunnar á Akureyri.

Bíllinn er afar illa farinn eftir veltuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×