Samkomulag um byggingu hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ 23. apríl 2010 17:15 Árni Páll og Haraldur undirrituðu samninginn í dag. „Með tilkomu hjúkrunarheimilis rætist langþráður draumur Mosfellinga,“ sagði Haraldur. Mynd/www.moso.is
Félags- og tryggingamálaráðherra og bæjarstjóri Mosfellsbæjar undirrituðu í dag samning um byggingu hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ. Ráðgert er að hefja framkvæmdir í sumar og að heimilið verði tekið í notkun vorið 2012. Í samningnum er gert ráð fyrir að Mosfellsbær taki að sér að hanna og byggja 30 rýma hjúkrunarheimili við Hlaðhamra í Mosfellsbæ. Mosfellsbær leggur jafnframt til lóð undir bygginguna, að fram kemur í tilkynningu. Félags- og tryggingamálaráðuneytið mun á 40 árum greiða Mosfellsbæ hlutdeild í húsaleigu vegna húsnæðis sem ígildi stofnkostnaðar. Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, gekkst nýlega fyrir lagabreytingu sem heimilar Íbúðalánasjóði að lána sveitarfélögum fyrir öllum byggingakostnaði hjúkrunarheimila og er framkvæmdin í Mosfellsbæ byggð á þeim grunni. Níu sveitarfélög hafa átt í viðræðum við ríkið um byggingu hjúkrunarheimilis og hefur Mosfellsbær verið í forsvari fyrir þau. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við hjúkrunarheimilið Í Mosfellsbæ hefjist í sumar og það verði tekið í notkun vorið 2012.Langþráður draumur Mosfellinga „Með tilkomu hjúkrunarheimilis rætist langþráður draumur Mosfellinga, en bæjaryfirvöld hafa frá árinu 1998 leitað samþykkis ráðuneytisins um heimild til byggingar og rekstur hjúkrunarheimilis. Með tilkomu heimilisins verður síðasti hlekkurinn í mikilvægri þjónustukeðju við íbúa að veruleika," segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, í tilkynningunni. Árni Páll sagði við þetta tækifæri að einkar ánægjulegt væri að nú yrði af þessum langþráðu framkvæmdum. Löngu væri tímabært að hefja endurbyggingarátak og sérstaklega ánægjulegt væri að hægt væri að hleypa því af stokkunum á tímum þrenginga í efnahagslífinu. Framundan væri uppbygging 360 rýma sem kallaði á 1200 ársverk í uppbyggingunni, vítt og breitt um landið. Með þessu átaki náist að loka öllum tví- og þríbýlum á hjúkrunarheimilum og aðstaða þeirra sem þjónustuna njóta þannig bætt til muna.
Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent Spurning með sálina Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Fleiri fréttir Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Sjá meira