Vill ekki vera sett undir einn hatt 16. desember 2010 06:00 Tónlistarkonan hefur haft í nógu að snúast undanfarna mánuði við að kynna plötu sína Innundir skinni. fréttablaðið/vilhelm
Ólöf Arnalds er nýkomin til landsins eftir langa og stranga tónleikaferð um Evrópu og Bandaríkin. Hvíldin verður stutt því í janúar fer hún til Ástralíu þar sem hún hitar upp fyrir hljómsveitina Grinderman. Tónlistarkonan Ólöf Arnalds er stödd hér á landi í jólafríi eftir langa og stranga tónleikaferð. Hún spilaði á 32 tónleikum í Evrópu og Bandaríkjunum frá september fram í desember bæði sem aðalnúmerið og sem upphitunaratriði fyrir hljómsveitirnar Air og Blonde Redhead. „Þetta var mikil áskorun vegna þess að fólk var komið til að heyra eitthvað sem er mjög ólíkt því sem ég er að gera,“ segir Ólöf um upphitunaratriði sitt sem fékk fín viðbrögð áheyrenda. Ólöf er að fylgja eftir sinni annarri sólóplötu, Innundir skinni, sem hefur fengið frábæra dóma, bæði hér heima og erlendis. Breska tímaritið Uncut valdi hana eina af fimmtíu bestu plötum ársins, Mojo gaf henni fjórar stjörnur af fimm mögulegum og blöðin The Guardian og The Wall Street Journal skrifuðu heilsíðu greinar um Ólöfu. Einnig spilaði hún í útvarpi bæði hjá BBC og á tveimur stærstu almenningsútvarpsstöðvum Bandaríkjanna. Að auki var lag hennar Madrid valið lag ársins í flokki söngvaskálda á iTunes. „Það er frábært að fá viðurkenningu fyrir það sem maður er að gera og það er mjög hvetjandi. Ég reyni samt að halda mig á jörðinni í sambandi við þessa dóma en vona að þeir hjálpi til við að gera mér kleift að halda áfram að gera það sem ég er að gera,“ segir hún. Eftir að hafa stundað nám í Listaháskóla Íslands og unnið með múm, Skúla Sverrissyni og fleiri tónlistarmönnum gaf Ólöf út sína fyrstu sólóplötu, Við og við, árið 2007. Þjóðlagaskotin tónlistin þar sem kassagítarinn og óhefðbundinn söngur Ólafar var í aðalhlutverki féll í góðan jarðveg og platan hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin. Sjálf lítur Ólöf ekki á sig sem þjóðlagaflytjanda. „Það að ég skuli spila á órafmögnuð hljóðfæri veldur því að ég fell í þennan flokk. Það verður alltaf að setja allt í bása en ég væri mjög til í að sprengja það upp,“ segir hún ákveðin og hefur lítinn áhuga á að festa sig við eina tónlistarstefnu. Innundir skinni er nokkuð frábrugðin Við og við. Hljómurinn er stærri, enda hljóðfærin og samstarfsmennirnir fleiri en áður. Lögin eru bæði á íslensku og ensku. „Ég var að prófa svolítið að víkka allt út. Ég myndi segja að lögin væru fjölbreyttari og ólíkari hvert öðru heldur en á Við og við, sem var meira eitt þema,“ útskýrir Ólöf. „Ég lagði upp í vinnuferli að Innundir skinni með átján lög, tók upp tólf lög og svo fóru bara níu á plötuna. Hún varð kannski heilsteyptari en ég bjóst við miðað við hvað ég var úti um allt með hugmyndir og hvað það var mikill tilraunahugur í mér.“ Björk syngur í laginu Surrender. Spurð út í samstarf þeirra segir Ólöf: „Ég var að spila fyrir hana plötuna þegar ég var að „mixa“ hana og langaði að fá viðbrögð. Þá fékk hún hugmynd að stefi og sagði mér að hún gæti tekið þetta upp og látið mig hafa. Ég gæti notað þetta hvernig sem ég vildi. Ég tók ákvörðun um að hafa þetta óbreytt sem hún sendi mér.“ Björk var þá stödd í Púertó Ríkó á meðan Ólöf var í Reykjavík. „Ég var búin að taka upp lagið í heild sinni áður en röddin hennar bættist við. Svo kom þetta góða boð og þetta fallega innlegg frá henni og ég var mjög ánægð með það.“ Myndband við lagið má sjá á heimasíðu Ólafar og er það djarfara en fólk á að venjast frá tónlistarkonunni. Leikstjórar voru þeir Árni og Kinski sem hafa áður unnið fyrir Jónsa, Sigur Rós, Snow Patrol og Placebo. Myndbandið var tekið á Þingvöllum þar sem Ólöf dansar við hinn fransk-belgíska Damien Jalet, sem hefur unnið með Íslenska dansflokknum og Ernu Ómardóttur. Hugmyndin sem lögð var upp með var líkamleg togstreita milli karls og konu. „Við unnum þessar hreyfingar og það var ótrúlega gaman fyrir mig því ég hafði aldrei dansað neitt áður. Við höfðum bara einn dag í tökur og það var hellirigning, alveg ískalt. Þetta var alveg svakalegt og við vorum ansi hrakin eftir þetta,“ segir hún og hafði gaman af erótískum dansinum. „Ég held að þetta snúist líka um að þegar það er búið að setja á mann ákveðinn hatt kemur þessi tilhneiging að sprengja sig út úr því. Eins og þegar ég var búin að gera heila plötu á íslensku [Við og við] og það var búið að setja á mig íslenskrar-tungu-geislabaug. Annar hver íslensku kennari í menntaskóla var að hringja og biðja mig um að syngja á degi íslenskrar tungu. Þá kom bara upp einhver mótþrói í mér. Þetta er kannski þetta ungæðislega í manni. Ég er ekki til í að láta neitt of mikið að stjórn.“ Fram undan hjá Ólöfu er tónleikaferð um Ástralíu um miðjan janúar þar sem hún spilar á tónlistarhátíð í Sydney. Síðan fer hún til Tasmaníu og hitar upp fyrir Grinderman á einum tónleikum. „Það er frábært að fá að spila á undan Nick Cave í hans heimalandi. Þetta er flottur listamaður og mikið skáld líka. Þetta verður mjög spennandi,“ segir hún. „Út af því að það var ljóst að ég yrði í Ástralíu á þessum tíma var ég eitt af þeim atriðum sem komu til greina. Mér skilst að þeir hafi valið mig úr þeim hópi.“ Tónleikaferð um Evrópu er síðan fyrirhuguð í febrúar og í mars spilar Ólöf á tónlistarhátíðinni South By Southwest í Texas. Hún er einnig að vinna að sinni þriðju plötu sem hún vonast til að komi út fyrri hluta ársins 2012. Það er því nóg fram undan hjá Ólöfu á nýju ári. „Þetta lítur mjög spennandi út. Ég vona bara að ég uppskeri eins og ég er búin að sá.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Hera Björk mun kynna stigin Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Lífið Fleiri fréttir Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Sjá meira