Innlent

Stefna á flug frá Keflavík á morgun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Iceland Express stefnir að því að fljúga frá Keflavík á morgun. Keflavíkurflugvöllur hefur verið lokaður í dag og í gær.
Iceland Express stefnir að því að fljúga frá Keflavík á morgun. Keflavíkurflugvöllur hefur verið lokaður í dag og í gær.
Iceland Express stefnir að flugi til og frá Keflavíkurflugvelli á morgun. Fyrirhugað er að fljúga til London, Kaupmannahafnar, Berlínar og Brussel.

Tvær vélar Iceland Express fóru nú síðdegis frá Akureyri, annars vegar til London og hins vegar til Kaupmannahafnar. Þær vélar koma til baka í kvöld. Hugsanlegt er, að þær lendi í Keflavík. Ef ekki reynist unnt að lenda þar, lenda þær á Akueyrarflugvelli, segir í tilkynningu frá Iceland Express.

Farþegar sem eiga bókað flug með félaginu eru beðnir að fylgjast vel með, því áætlun getur breyst með stuttum fyrirvara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×