Lífið

Billy elskar Jessicu

Ást eða ekki ást? Corgan segist elska Jessicu Simpson, bara ekki á þann hátt sem fólk heldur að hann elski hana.
Ást eða ekki ást? Corgan segist elska Jessicu Simpson, bara ekki á þann hátt sem fólk heldur að hann elski hana.
Billy Corgan, gítarleikari rokksveitarinnar The Smashing Pumpkins, neitaði að tjá sig um meint ástarsamband sitt og Jessicu Simpson. Hann sagðist hins vegar elska hana. Í samtali við tímaritið Rolling Stone sagði Corgan að þau væru eingöngu vinir. „Fólk er að velta því fyrir sér hvort við höfum farið á stefnumót, hvort ég hafi hætt með henni eða hvort hún hafi hætt með mér. Samband okkar hefur ekkert með það að gera. Stundum finnst fólki bara gott að vera í kringum hvort annað og það koma yfirleitt bara góðir hlutir út úr slíku,“ sagði Corgan og bætti því við að ef fólk þekkti Simpson eins og hann þekkti hana myndi það, án nokkurs vafa, elska hana eins og hann gerir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.