Innlent

Helga leiðir Frjálslynda í Reykjavík

Framboðslisti Frjálslynda flokksins í Reykjavík var kynntur í gær. Helga Þórðardóttir er nýr oddviti.
Framboðslisti Frjálslynda flokksins í Reykjavík var kynntur í gær. Helga Þórðardóttir er nýr oddviti.
Helga Þórðardóttir, kennari, skipar 1. sætið á framboðslista Frjálslynda flokksins í borgarstjórnarkosningunum í maí. Haraldur Baldursson, tæknifræðingur, skipar 2. sætið. Framboðslistinn var kynntur í gær.

„Skattabyrðin er þegar það mikil að ekki verður meira lagt á borgarbúa. Frjálslyndi flokkurinn vill því forgangsraða og tryggja með því að Reykjavíkurborg sé í stakk búin að mæta þeim velferðarþörfum sem til staðar eru og eru líklegar til að aukast,“ segir á heimasíðu flokksins.

Framboð Frjálslynda flokksins og óháðra fékk einn mann kjörinn í borgarstjórn fyrir fjórum árum. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Auk þess þurrkaði flokkurinn af þingi í kosningunum fyrir ári síðan. Frjálslyndi flokkurinn bíður hyggst bjóða fram í nokkrum sveitarfélögum þar á meðal í Reykjavík, Kópavogi og á Ísafirði.

Helga Þórðardóttir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×