Má ég koma heim? 28. nóvember 2010 08:30 Á nýrri plötu Erps er 21 lag og sjálfur segist hann aldrei hafa verið eins hreinskilinn.fréttablaðið/pjetur
Erpur Eyvindarson fer öfganna á milli í textunum á fyrstu sólóplötu sinni. Segja má að platan skiptist í þrjá hluta: Djamm, pólitík ásamt hluta þar sem við heyrum mýkri hlið á rapparanum sem er aldrei kjaftstopp. „Þegar maður er að fá sér, þarf að tala um það. Þegar maður er í frænkunum, þarf að tala um það. Þegar maður er að mótmæla þarf að tala um það og þegar maður þarf að skrifa eitthvað til að koma hlutunum frá sér á persónulegum nótum, þá gerir maður það," segir rapparinn Erpur Eyvindarson. Erpur sendi nýlega frá sér plötuna Velkomin til Kópacabana. Platan er stór í sníðum, inniheldur 21 lag sem tekur meira en klukkutíma að spila. Erpur byrjaði að vinna að plötunni fyrir tæpum fjórum árum og fer öfganna á milli í textagerðinni. Hann hefur oft verið gagnrýndur fyrir grófa texta og í laginu 112 stendur hann undir nafni: Blaz Roca er halinn sem börnin þín fíla, því að, ég kenni þeim að ríða, fýra og dett'íða Fjórfingra þig físa, fyrir kynslóðina mína Ég er Blaz Roca bíaaa, étum krakkana þína „Þetta er rosalega mikið fokk jú-lag," útskýrir Erpur. „Eins og hann Dabbi T segir í þessu lagi: „Dabbi T og hinn alræmdi Erpur - ástæðan fyrir því að barnið þitt drekkur." Þetta er náttúrulega bull. Krakkar voru að drekka löngu áður en ég byrjaði að rappa. Það er svo mikil einföldun að kenna alltaf tónlistinni um. Þetta snýst svolítið mikið um það." Þannig að þetta er hæðni? „Já. Bara pönk - að hræða lið sem er svo hysterískt að það meikar ekki sens. Sumir fatta ekki að foreldrar ala upp krakka, ég get ekki alið upp krakka annarra." Erpur fer út í persónulega og mjúka sálma í lögunum Framhaldið, Má ég koma heim? og Má ég koma aftur heim? Sem dæmi um það er hér textabrot úr Má ég koma heim?: Hún er á maraþon túr og rústa heilli íbúð en ég sver upp á þennan púng að ég hef alltaf verið trúr Ég bara hata að vera þekktur Af því ég er Erpur Þá hlýt ég að vera að negla aðrar stelpur Mér finnst ég sjá nýjan Erp þarna. Þetta kom mér svolítið mikið á óvart. „Það finnst mér líka. Uppáhaldslagið á plötunni minni er Má ég koma heim? og það hafa margir sagt það sama. Þetta er allt nýtt og mun meira fullorðins. Maður verður alltaf að gera eitthvað nýtt, þó ég þurfi líka að skila ákveðnum hlutum til þeirra sem hafa fylgst mest með mér og hafa mest gaman af mér. Það eru hlutir eins og samfélagsleg ádeila í lögum eins og Stórasta landið, Hleraðu þetta, Landráð og Reykjavík Belfast." Erpur útskýrir að það sé miklu persónulegra að gera sólóplötu heldur en þær sem hann hefur gert t.d með hljómsveitinni XXX Rottweiler. „Þegar ég fer með Rottweiler í stúdíó get ég ekki sagt: „Strákar, munið þið eftir henni Gunnu? Eigum við ekki að rappa aðeins um hana?" Þess vegna hef ég ekki gert þetta áður. Í bandi er miklu meiri málamiðlun um þemað. Þetta er lang persónulegasta platan mín og þetta er bara real shit. Beint frá hjartanu? Já. Þetta er það hreinskilnasta sem ég hef gert opinberlega." Þannig að þú hefur lent í því sem þú rappar um í þessum texta? „Já, þetta er mjög klassískt, sko. Ógeðslega klassískt hallæri. En það eru kostir og gallar og þetta er einn af göllunum. Það finnst engum að gæjar eins og ég og fleiri getum verið slakir heima á laugardagskvöldi að spila í PlayStation. Maður þarf alltaf að vera einhvers staðar að láta sjúga sig." Þú ert ekki að gera mikið til að kveða það niður! „Ég er ekkert að stressa mig á því hvað fólk heldur. En ef þetta er að trufla samskipti manns við einhvern sem skiptir máli þá er það fáránlegt. Ég er samt ekki að segja að það sé neitt að því að láta sjúga sig öll laugardagskvöld - ég er bara alltaf ekki að því." atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Fleiri fréttir Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Sjá meira