Gerði sjampóauglýsingu á Spáni 9. apríl 2010 06:00 Reynir Lyngdal gerði sjampóauglýsingu fyrir Mið-Austurlönd með þeim Antar Yahia og Ahmed Hassan. „
Þetta er bara eitt af þessum verkefnum sem detta inn á borð hjá manni,“ segir leikstjórinn Reynir Lyngdal. Ólíkt flestum Íslendingum eyddi Reynir ekki páskunum í súkkulaðieggjaát heldur tók upp sjampóauglýsingu í höfuðborg Spánar, Madríd, sem sýna á í flestum Mið-Austurlöndum. Aðalleikararnir í auglýsingunni voru Ahmed Hassan, fyrirliði egypska landsliðsins og einn leikjahæsti landsliðsmaður heims, og Antar Yahia, aðalstjarna alsírska landsliðsins. Til gamans má geta að Alsír og Eygptaland áttu í harðri baráttu um sæti á heimsmeistaramótið í Suður-Afríku þar sem hálfgert frost ríkti í samskiptum ríkjanna meðan á þeirri rimmu stóð. Alsíringar höfðu sigur í spennuþrungnum leik og skildu Egypta eftir með sárt ennið. Reynir segist ekki hafa hugmynd um hvernig þetta verkefni rataði í hendurnar á honum, hann hafi þó gert fótboltaauglýsingar fyrir Landsbankann og leikstjórinn býst fastlega við því að önnur hver auglýsing á næstunni eigi eftir að hafa knattspyrnukeim, svo ekki sé meira sagt. Reynir brá sér jafnframt á völlinn í Madríd og sá litla liðið Atletico Madrid etja kappi við Baskana frá Bilbao. „Þetta var ótrúleg upplifun. Maður hefur aldrei skilið þetta æði í kringum knattspyrnu en þarna fattaði maður þetta. Og orðbragðið sem menn nota er rosalegt.“ - fgg CAIRO, EGYPT - NOVEMBER 14: Ahmed Hassan of Egypt during the FIFA2010 World Cup qualifying match between Egypt and Algeria at the Cairo International Stadium on November 14, 2009 in Cairo, Egypt. (Photo by Clive Mason/Getty Images) Ahmed Hassan/Egyptaland/Fyrirliði/
Mest lesið Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Menning Lively og Baldoni náðu sáttum Lífið Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Lífið Þessi sigruðu Met Gala Tíska og hönnun Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Lífið Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Lífið Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Lífið Met Gala-bölvunin alræmda Tíska og hönnun Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Lífið Hittu sjálfan Jacquemus í New York Tíska og hönnun Fleiri fréttir Lively og Baldoni náðu sáttum Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Sigga hefur starfað lengi á toppnum hjá IKEA en ákvað 54 ára að fara í nám Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Sjá meira