Áhugi frá bandarískri útgáfu 21. september 2010 06:00 Hljómsveitin er í viðræðum um að gefa út nýjustu plötu sína í Bandaríkjunum.
Hiphop-hljómsveitin Original Melody er í viðræðum við lítið bandarískt útgáfufyrirtæki, Hartke Records, um að það kynni og dreifi nýjustu plötu hennar, Back & Forth, sem kemur út 1. október. „Við erum að skoða þennan samning. Við ætlum að fara vel yfir þetta áður en við skrifum undir,“ segir Ívar Schram úr Original Melody. „Fyrirtækið er í Kansas. Þar var gæi sem fann okkur á netinu. Við áttum saman fund á Skype þar sem hann var að útskýra hvað hann vildi gera. Hann vill reyna að koma tónlistinni út fyrir landsteinana og byggja upp aðdáendahóp. Þetta er bara gaman og vonandi kemur eitthvað út úr þessu.“ Stutt er síðan nýju plötunni var lekið á netið á bandarísku hiphop-bloggsíðunni Thewordisbond.com. Ívari tókst sem betur fer að stöðva lekann. „Við bjuggum til síðu fyrir plötuna og þar átti hún að vera læst. Náungi á þessari bloggsíðu fann plötuna og póstaði á bloggið sitt. Þar sá ég að allt í einu voru mörg hundruð manns búnir að hlaða niður titillaginu,“ segir Ívar. „Ég sendi þeim póst og sagði þeim að þessi plata væri langt í frá ókeypis og bað þá um að taka hana út.“ Back & Forth er fyrsta plata Original Melody síðan Fantastic Four kom út fyrir fjórum árum. Engir gestarapparar koma við sögu í þetta sinn. Einn gestur syngur þó á plötunni, Þorsteinn Kári Jónsson, sem söng með Hjaltalín í MH áður en sveitin sló í gegn. „Hann stóð sig fáránlega vel,“ segir Ívar. - fb
Mest lesið Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Lífið Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Lífið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Lífið Feimnin við að rukka: Ekki treysta á „ég borga þetta og þú næsta“ Áskorun „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Lífið Stríðið um baðstrendur Ítalíu Lífið Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Lífið Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Lífið Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Bíó og sjónvarp Uppskriftir: Axel bauð í þriggja rétta grillveislu Lífið samstarf Fleiri fréttir Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Sjá meira