Lífið

Angelina biður um hjálp

Angelina Jolie vill meiri aðstoð til Pakistan. Nordic Photos/Getty
Angelina Jolie vill meiri aðstoð til Pakistan. Nordic Photos/Getty

Góðgerðarstjarnan Angelina Jolie heldur áfram að biðla til heimsbyggðarinnar og vill að hún bregðist skjótt við vegna hamfaranna í Pakistan.

Jolie hefur birt tilkynningu á heimasvæði Sameinuðu þjóðanna þar sem hún hvetur aðdáendur sína til að láta fé af hendi rakna svo hægt verði að koma íbúum hamfarasvæðanna til hjálpar. Talið er að yfir fimmtán hundruð manns hafi látist í þessum miklu flóðum en yfir 20 milljónir manna eru án heimilis. Jolie hefur þegar gefið yfir 100 þúsund dollara til hjálparstarfa í Pakistan.

„Því fleiri sem leggjast á eitt þeim mun fleiri tjöldum, mat og lyfjum getum við komið til fórnarlambanna,“ segir Jolie í tilkynningunni.

Hægt er að horfa á skilaboð Angelinu hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.