Lou Reed vildi ekki sjá Boyle 11. september 2010 09:00 Lou Reed vildi ekki að Susan Boyle fengi að flytja Perfect Day eftir sig. Boyle tók svar Reed mjög nærri sér og fékk taugaáfall í flugi á leið til London frá New York.
Breskir fjölmiðlar greindu frá því í vikunni að farþegar hefðu kvartað undan ónæði af hálfu söngkonunnar Susan Boyle um borð í flugi frá New York til London í vikunni. Boyle ku hafa sungið hátt og grátið með reglulegu millibili auk þess sem henni þótti ekkert verra að fá sér í tána inn á milli. Bandaríski slúðurvefurinn TMZ komst í gær yfir tölvupóst frá talsmanni Boyle þar sem málið er útskýrt. Þar virðist Lou Reed vera aðalsökudólgurinn. Boyle átti víst að koma fram í American’s Got Talent og hafði í hyggju að syngja Perfect Day eftir Reed og töldu aðstandendur Boyle þetta nokkuð öruggt útspil enda vinsælt ábreiðulag. Reed fékk veður af þessari uppákomu og aðeins tveimur klukkustundum áður en lagið var tekið upp, hafði hann samband við umboðsmann Boyle og kom í veg fyrir upptökurnar. Boyle hætti síðan við að koma fram í þættinum enda hafði hún ekki æft neitt annað lag. Fram kemur í bréfinu að Boyle hefði ekki haft neina hugmynd um andstöðu Reed og hún hafi komið henni í opna skjöldu. „Við höfðum enga hugmynd um þessa afstöðu Reed þegar við lögðum af stað frá London,“ skrifaði talsmaður Boyle.
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Lífið Fleiri fréttir Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Sjá meira