Leynd hvílir yfir Skaupinu: Álftanes tekið fyrir 18. nóvember 2010 08:30 Gunnar Björn hyggst vernda innihald Skaupsins með kjafti og klóm en upplýsir þó að gæðaleikarinn Hjalti Rögnvaldsson muni leika í því. „
Við byrjuðum á mánudaginn og erum hérna úti á Álftanesi," segir Gunnar Björn Guðmundsson, leikstjóri Áramótaskaups Sjónvarpsins. Tökur á þessum vinsælasta sjónvarpslið ársins hófust í vikunni og það var hið skuldum hlaðna sveitarfélag Álftanes sem fékk þann vafasama heiður að vera heimsótt fyrst en það hefur verið töluvert í fréttum vegna bágrar fjárhagsstöðu. Gunnar vildi hins vegar ekkert gefa upp um hvar þeir væru nákvæmlega staddir enda hvílir mikil leynd yfir gerð Skaupsins líkt og í fyrra. Leikstjórinn vildi ekki einu sinni gefa upp hvort hann væri búinn að ráða leikara í hlutverk borgarstjórans Jóns Gnarr en það liggur beint við að persóna hans verði fyrirferðarmikil í Skaupinu vegna sigurs Besta flokksins í höfuðborginni. „Það er ekkert öruggt í þessum bransa," segir Gunnar og vísar spurningunni frá sér. Reiknað er með tökur standi yfir út nóvember og svo verður opinn gluggi í desember ef eitthvað stórvægilegt gerist. Sami hópur stendur að Skaupinu í ár og gerði það svo glæsilega í fyrra en það eru þau Ari Eldjárn, Anna Svava Knútsdótir, Halldór E. Högurður, Sævar Sigurgeirsson, Ottó Geir Borg og Gunnar Björn sjálfur sem skrifa handritið. Gunnar fékkst til að upplýsa að Gunnar Hansson, Hjalti Rögnvaldsson og Anna Svava myndu leika í Skaupinu en sagðist svo ætla að vera þögull sem gröfin. „Áramótaskaupið er svo merkilegt, fólk vill láta koma sér á óvart en vill líka aðeins fá smjörþefinn af því."- fgg
Mest lesið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Myndaveisla: Skagarokk haldið í fyrsta skipti síðan 1994 Tónlist Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Lífið Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Lífið Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Lífið Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Lífið Fleiri fréttir Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Sjá meira