Hera vinnur hommana á sitt band 29. maí 2010 12:30 Friðrik Ómar segir að Hera Björk hafi unnið á sitt band einn mikilvægasta aðdáendahópinn; hommana. Hann spáir laginu velgengni í kvöld.
Hera Björk Þórhallsdóttir hefur unnið einn mikilvægasta þrýstihópinn í Eurovision-keppninni á sitt band, hommana. Þetta segir Friðrik Ómar Hjörleifsson sem tryllti Eurovision-aðdáendur í gærkvöldi á miklu Eurovision-balli á einum stærsta skemmtistað Noregs, Latter. Friðrik hefur sjálfur reynslu af Eurovision, söng að sjálfsögðu með Eurobandinu fyrir tveimur árum og var bakrödd í rússneska ævintýrinu hjá Jóhönnu Guðrúnu. Friðrik bendir á að Eurovision sé mikil hommakeppni og þeir geti haft áhrif á útkomuna, hópurinn haldi úti fjölda fréttasíðna um Eurovision sem síðan stærri fjölmiðlarnir skoði. „Þeir dýrka hana, hún er fullkomin í þeirra augum og þetta getur haft mikið að segja þegar á hólminn er komið. Hún hefur líka verið dugleg að byggja upp þetta net, danska lagið sem hún söng í fyrra sló í gegn hjá Eurovision-aðdáendum, var valið besta lagið af þeim sem ekki komust í keppnina sjálfa, og svo hefur hún verið bakrödd hjá Jóhönnu og Eurobandinu þannig að þessi hópur þekkir hana orðið mjög vel,“ segir Friðrik. Hann viðurkennir að hafa haft trú á að lagið kæmist í gegnum undanriðilinn en var óviss um framhaldið. Sú skoðun hefur heldur betur breyst. „Eftir að hafa séð hin lögin sýnist mér að okkar framlag smellpassi inn í keppnina og Hera virðist því vera á réttum stað á réttum tíma. Sem skiptir miklu máli,“ segir Friðrik sem spáir Íslandi þriðja til fimmta sæti. „En auðvitað vonar maður að hún vinni.“ - fgg
Mest lesið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Orion tannlæknastofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í miðbæ Búdapest Lífið samstarf Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Kominn á toppinn Lífið Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag Lífið samstarf Bylgjulestin mætir á Hjarta Hafnarfjarðar á laugardag Lífið samstarf Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Fleiri fréttir Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum Sjá meira