Lífið

John Travolta á von á barni

John Travolta og Kelly Preston. MYND/Cover Media.
John Travolta og Kelly Preston. MYND/Cover Media.

Leikarinn John Travolta, 56 ára, og eiginkona hans leikkonan Kelly Preston, 47 ára, eiga von á sínu þriðja barni.

Hjónin héldu hátíðlega upp á að Kelly gengur með dreng í veislu sem þau héldu fyrir fjölskyldu og vini, 40 manns, á heimili þeirra í Los Angeles í byrjun ágúst.

John og Kelly syrgja enn son sinn, Jett, sem féll frá í janúar 2009 aðeins sextán ára gamall.

Saman eiga þau 10 ára gamla dóttur, Ellu Bleu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.