Stærstu plötuútgáfur landsins í eina sæng 29. maí 2010 14:00 Steinþór Helgi og Kiddi í Hjálmum hafa flutt plötuútgáfuna Borgina undir Senu.fréttablaðið/stefán „
Við munum halda áfram sömu hugsjón; að starfa fyrir listamennina okkar. Það er ekkert að fara að breytast,“ segir plötuútgefandinn og umboðsmaðurinn Steinþór Helgi Arnsteinsson. Plötuútgáfan Borgin hefur verið lögð niður í núverandi mynd og verður í framtíðinni undirútgáfa Senu, eins og Kölskaútgáfa Barða Jóhannssonar. Baldvin Esra Einarsson mun stíga til hliðar og einbeita sér enn frekar að útgáfufyrirtæki sínu, Kimi Records, og Sena dreifir framtíðarútgáfum Borgarinnar. Borgin gaf út fjölmargar plötur á síðasta ári sem seldust í þúsundum eintaka. Á meðal listamanna útgáfunnar eru Hjaltalín og Hjálmar sem áttu plötur á lista yfir söluhæstu plötur ársins. Steinþór segir að þótt fyrsta árið hafi gengið vel, hafi reksturinn verið erfiður. „Það er svakalega erfitt að byrja með svona fyrirtæki,“ segir Steinþór. „Reksturinn sem slíkur gekk ekki nógu vel upp, eftir á að hyggja. Kannski fórum við of geyst í þetta. Við settumst því niður, fórum yfir samstarfið og sammæltust um að það væri ekki rétt að halda áfram á sama rekstrargrundvelli.“ Steinþór segir stór verkefni fram undan hjá Borginni. Meðal annars jólaplötur frá Sigurði Guðmundssyni og Baggalúti, barnaplata frá Braga Valdimari Skúlasyni og Óttari Proppé ásamt plötu með Hjaltalín og Sinfóníuhljómsveit Íslands. „Við höfðum ekki fjármagn til að ráðast í þessi verkefni,“ segir Steinþór. Sena mun því koma að fjármögnun verkefnanna þó að nafnið og merkið verði í eigu Steinþórs og Kidda. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sjá meira