Airwaves í hlýjan faðm hins opinbera 26. mars 2010 03:45 Nýtt fólk í brúnni. Anna Hildur og hennar fólk hjá Útón tekur við rekstri Iceland Airwaves-tónlistarhátíðarinnar af Þorsteini Stephensen. Ráðinn verður framkvæmdastjóri hátíðarinnar á næstu tveimur vikum. „
Ég er ánægður með þessa niðurstöðu. Ég vona að hátíðinni sé fundinn réttur farvegur með Útón,“ segir Þorsteinn Stephensen, framkvæmdastjóri Hr. Örlygs. Í gær var tilkynnt að Icelandair og Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar, Útón, hefðu skrifað undir samning þess efnis að Útón sjái um rekstur tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves næstu fimm árin. Þar með kveður Þorsteinn hátíðina sem hann kom á fót fyrir ellefu árum og hefur komið að skipulagningu síðan. Í samkomulaginu felst þó að Þorsteinn verði nýjum rekstraraðila innan handar næstu tvö árin. Þorsteinn segir að rekstur Airwaves hafi gengið erfiðlega síðustu tvö ár. Skipulagning hátíðarinnar sé tímafrek vinna sem hafi ekki staðið undir sér. Hann segist telja að hátíðin þurfi á auknum styrkjum að halda til að lifa áfram og nýjum rekstraraðila gangi kannski betur að afla þeirra. „Airwaves er sterkt vörumerki og ég vona að það takist að halda anda hátíðarinnar áfram,“ segir hann. Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmdastjóri Útón, segir að hún muni ekki skipta sér af daglegum rekstri Airwaves. Ráðinn verði nýr framkvæmdastjóri í hálft starf til að skipuleggja næstu hátíð. Svo verði málin skoðuð betur. Hún segir að strax verði auglýst eftir framkvæmdastjóra. „Það er búið að vinna töluverða vinnu og ég býst við að við tilkynnum fljótlega fyrstu tónlistarmennina sem koma fram á hátíðinni.“ Anna Hildur hafnar því að með þessu sé verið að ríkisvæða tónlistargeirann. „Þetta verður til þess að breikka samstöðuna og styrkja stoðir hátíðarinnar. Það er bara einhver mýta að þetta sé ríkisvæðing.“- hdm
Mest lesið Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Lífið Tony Hawk á Íslandi: Heilsaði upp á aðdáendur í Brettagarðinum og skoðaði Jökulsárlón Lífið Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Púlsinn 14.ágúst 2014 Harmageddon Aniston valin kynþokkafyllst Lífið Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Lífið Lambakjöts búrborgari Matur RIFF í Variety Bíó og sjónvarp Öfund og undirferli Bíó og sjónvarp Traustasti gjaldmiðillinn Lífið Fleiri fréttir Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Ragga Theó fann ástina hjá Davíð Þór Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Stjörnulífið: Fáklædd í fimbulkulda Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum „Er eðlilegt að kynlíf taki af mér stjórn og að ég sé upptekinn af kynlífi flesta daga?“ Gisti þar sem Verdi andaðist fyrir hreina tilviljun Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Gæti vaknað einn daginn og ætlað á þing Kannast ekki við að vera genginn til liðs við Samfylkinguna „Sílíkon er eitthvað sem mun fara með mér í gröfina“ Aron Can og Erna selja en elska eldhúsbúrið Brúðurin hljóp grátandi út áður en Victoria dansaði við Brooklyn Fyrrverandi bassaleikari Scorpions látinn Rifjar upp misgóðar minningar í sölutilkynningunni „Mig langar bara að vera upprétt og sterk“ Tinna Hrafns og Sveinn selja á Laugarásveginum Löggan byrjar á TikTok með því að gasa Egil og Rikka Kvenskælingar svekktir eftir að hafa lent í hakkavél MR tvisvar í röð Heated Rivalry-stjörnur verða á Ólympíuleikunum Fengu gefins sjö nýjar þrautir frá breska þrautahöfundinum Mari og Njörður eiga von á sumarbarni Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Kemur Önnu miðli til varnar: „Þið megið segja að ég sé auðtrúa asni“ Sjá meira
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Lífið
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Lífið