Eurovision: Allt var reynt til að fá Ítalíu aftur Tinni Sveinsson skrifar 27. maí 2010 13:00 Eyfi og Stebbi sungu Nínu á sviðinu í Róm, síðast þegar Ítalir héldu keppnina.
Framkvæmdastjórn Eurovision tilkynnti í fyrra að allt yrði reynt til að fá Ítalíu aftur til að taka þátt í keppninni í ár. Svante Stockselius, umsjónarmaður keppninnar, staðfesti á blaðamannafundi á þriðjudag að þetta hefði verið gert en Ítalir hefðu ekki haggast. „Við settumst niður með fólki frá RAI, ítalska ríkisútvarpinu. Við höfum reyndar gert það árlega síðustu ár en það er alltaf mismunandi fólk sem talar við okkur. Þeir vildu ekki vera með en ég er ekki frá því að við séum nær markmiðinu en áður." Ítalir tóku þátt í Eurovision á árunum 1956 til 1997 og voru meðal sjö þjóða sem voru í fyrstu keppninni. Þeir sögðu sig úr keppninni án útskýringa árið 1997 og hafa ekki tekið þátt síðan. Ítalir eru reyndar nokkuð erfiðir hvað þetta varðar því þeir höfðu þrisvar sinnum áður sagt sig úr keppninni. Fyrst 1981 í tvö ár en þá sögðu þeir áhugann heimafyrir of lítinn. Síðan 1986 og loks frá 1994 til 1996. Umsjónarmenn keppninnar hafa staðfest að ef Ítalía myndi taka aftur þátt þá fengi landið sömu meðferð og stóru löndin fjögur, Bretland, Spánn, Þýskaland og Frakkland. Ítalía myndi þannig ekki þurfa að taka þátt í undankeppni heldur alltaf vera með í úrslitakeppninni sjálfri. Stóru löndin yrðu þá fimm. Ítalir hafa tvisvar sinnum unnið Eurovision. Fyrst árið 1965 með laginu Non ho l'età, sem Ellý Vilhjálms flutti seinna undir nafninu Heyr mína bæn. Myndband af flutningnum má sjá hér. Ítalir unnu aftur árið 1990 með laginu Insieme: 1992. Myndband af flutningnum má sjá hér.Hér er Facebook-síða sett upp af aðdáendum sem vilja fá Ítali aftur í Eurovision.
Mest lesið „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ Lífið „Yndislegir vinir gáfu okkur saman í plötubúð“ Lífið „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Lífið Stjörnulífið: „Engar áhyggjur við erum ekki skilin“ Lífið Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar Lífið Sögulegt sveitaball í hundrað ár Lífið Boxari selur íbúð með heitum potti og Esju útsýni Lífið Endaði á geðdeild eftir notkun MDMA í sálfræðimeðferð Lífið Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Menning „Það verður erfitt að trúa því að lífið muni einhvern tímann leiða eitthvað gott af sér” Lífið Fleiri fréttir Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ „Yndislegir vinir gáfu okkur saman í plötubúð“ Sögulegt sveitaball í hundrað ár Boxari selur íbúð með heitum potti og Esju útsýni Telur að 511 kílómetra hlaupið styrki hlauparann „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Ómissandi gönguleiðir sem þú verður að prófa Stjörnulífið: „Engar áhyggjur við erum ekki skilin“ Riddarar kærleikans í hringferð um landið Endaði á geðdeild eftir notkun MDMA í sálfræðimeðferð Reykvíkingur ársins tileinkar samstarfsfólki útnefninguna Nágrannar kveðja sjónvarpsskjáinn „Það verður erfitt að trúa því að lífið muni einhvern tímann leiða eitthvað gott af sér” Krakkatían: Narnía, krónprins og sundlaugs Klay Thompson og Megan Thee Stallion nýtt par Börnin læra að sauma út, baka og elda í Hússtjórnarskólanum „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Sjá meira