Lék undirmann Kim Bodnia 24. september 2010 06:00 Tómas Lemarquis og Kim Bodnia leika á móti hvor öðrum í nýrri, danskri sjónvarpsþáttaröð. Þeir fara með hlutverk rússneskra mafíósa.
Tómas Lemarquis sýnir ásamt Ragnari Jónssyni í Kling & Bang. Tómas lék nýverið í danskri sjónvarpsþáttaröð á móti aðalleikaranum úr Pusher. Leikarinn Tómas Lemarquis fer með hlutverk í nýrri danskri sjónvarpsþáttaröð sem kemur út á næsta ári. Þáttaröðin ber heitið Den som dræber og í þáttunum er fylgst með störfum réttarlæknisins Thomas Schäeffer, sem Jakob Cedegren leikur. Landsmenn ættu margir að kannast við Cedegren úr kvikmyndinni Voksne mennesker eftir leikstjórann Dag Kára. Danski stórleikarinn Kim Bodnia, sem lék meðal annars í kvikmyndunum Pusher, Nattevakten og I Kina spiser de hunde, fer með hlutverk rússnesks mafíuforingja í tvemur þáttum og leikur Tómas einmitt meðlim í glæpaklíku Bodnia. „Það var alveg stórkostlegt að fá tækifæri til að leika á móti eins góðum leikara og Kim," segir Tómas sem talaði dönsku í þáttunum. „Ég tala ágæta dönsku. Ég bjó þarna í þrjú sumur sem unglingur og vann á vegum Nordjobb þannig að danskan var engin fyrirstaða." Þáttaröðin er framleidd af Misofilm og er samstarfsverkefni norrænu sjónvarpsstöðvanna. Aðspurður segist Tómas hlakka mikið til að sjá afrakstur vinnunnar, en þættirnir verða sýndir einhvern tímann á næsta ári. Luminous í Kling & BangTómas og Ragnar.Á laugardaginn mun Tómas opna listsýningu í Gallerí Kling & Bang ásamt listamanninum Ragnari Jónssyni. Sýningin ber yfirskriftina Luminous og inniheldur málverk, skúlptúr og ljósmyndir svo fátt eitt sé nefnt. Á sýningunni munu Tómas og Ragnar kanna mörkin milli vitundar og dulvitundar og milli þessa heims og annars. „Sýningin fjallar um andleg málefni í víðasta skilningi þess orðs, en við fjöllum um þau með blöndu af húmor og alvöru." Opnunin hefst stundvíslega klukkan 17.00. sara@frettabladid.is
Mest lesið Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Tíska og hönnun Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Fleiri fréttir Kynlíf á ekki að vera vont Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Catherine O'Hara er látin Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa „Ég er femínisti“ Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Djammaði með feðgunum Kára og Agli Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Sjá meira