Lífið

Sér eftir að hafa hlegið í nektarsenu

Umrædd sena úr myndbandinu við lagið Kids.
Umrædd sena úr myndbandinu við lagið Kids.

Robbie Williams viðurkennir að hann kom illa fram við áströlsku söngkonuna Kylie Minogue með því að hlæja að henni þegar hún afklæddi sig fyrir framan hann við gerð tónlistarmyndbands fyrir mörgum árum.

Robbie segist hafa fallið fyrir Kylie og hugsað stöðugt um hana eftir að hann eyddi tíma með henni þegar þau sungu saman lagið Kids.

Robbie drakk áfengi til að efla sjálfstraustið gagnvart fáklæddri Kylie þegar þau gerðu myndbandið en í staðinn fyrir að verða öruggur lét hann eins og krakki að eigin sögn.

„Ég skellihló þegar hún klæddi sig úr. Það lagðist ekki vel í Kylie hvernig ég hagaði mér," viðurkennir Robbie.

„Ég hagaði mér eins og fáviti hlæjandi að henni og ég sé eftir því."

Hann hefur ekki þorað að ræða þetta við Kylie síðan þá en vonar að hann geti beðið hana fyrirgefningar áður en langt um líður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.