Þorgeir Ástvalds og Valtýr á úrslitaleikinn í NBA 11. júní 2010 09:45 Þorgeir heldur með Boston en Valtýr með Lakers.
Útvarpsmennirnir Þorgeir Ástvaldsson og Valtýr Björn Valtýsson eru á leiðinni á fimmta úrslitaleik Lakers og Boston í NBA-deildinni í körfubolta sem verður háður á sunnudag. „Ég er að fara í hálfgerða pílagrímsför og upplifa stemningu sem er engri lík," segir Þorgeir Ástvaldsson, útvarpsmaður á Bylgjunni. Körfuboltaáhugi hans á rætur sínar að rekja til Langholtsskóla þar sem ÍR-ingurinn Einar Ólafsson var leikfimikennarinn hans. Þorgeir æfði undir hans stjórn hjá ÍR en hætti í körfuboltanum þegar hann hætti að stækka, að eigin sögn. „Ég hef alltaf fylgst gríðarlega vel með þessu. Ég hef ekki verið með í lýsingum en ég hef verið viðloðandi íþróttadeildir þessara fjölmiðla sem ég hef unnið hjá," segir hann. „Sonur minn var líka ungur að árum mjög mikill áhugamaður þegar NBA-bomban reið yfir með Jordan í fararbroddi. Hún hreif mig aftur með en ég hef ekki spilað síðan ég var barnungur." Þorgeir er íhaldssamur maður en ákvað engu að síður að stökkva á tækifærið til að fara á leikinn þegar það gafst. „Maður verður að hleypa barninu í sér að. Það er gott að gleyma og setja sig inn í þennan heim. Þetta er mjög gott dóp og fær mann til að gleyma leiðindunum sem eru í gangi hérna heima." Hann heldur með Boston í einvíginu, einfaldlega vegna þess að borgin er bæði mjög evrópsk og nær Íslandi á landakortinu. Upprunalega er hann þó Bulls-maður og því verður gaman fyrir hann að fylgjast með fyrrverandi þjálfara liðsins, Phil Jackson, á hliðarlínunni að stjórna Lakers-liðinu. Valtýr Björn er aftur á móti Lakers-maður en það komi ekki að sök, þeir eigi ýmislegt annað sameiginlegt. „Við erum báðir Framarar og Ítalíu-vinir sem höldum með AC Milan og ítalska landsliðinu," segir Valtýr.
Mest lesið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Sjá meira