Auðunn keppir um 400 milljónir 11. mars 2010 06:00 Meðal þeirra bestu Auðunn Blöndal fær að reyna sig gegn þeim bestu í Monte Carlo. Tobey Maguire lætur sig yfirleitt ekki vanta á mótið.
Sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal tekur þátt í einu stærsta pókermóti heims þegar hann sest við eitt af spilaborðunum í spilavítinu Monte Carlo við Grace-götuna í Mónakó og keppir á lokamóti Evrópumótaraðarinnar í póker fyrir hönd pókerfyrirtækisins PokerStars.com. Vinningsféð er hæsta upphæð sem nokkur pókerspilari getur unnið sér inn utan Las Vegas en sá sem stendur uppi sem sigurvegari getur farið heim með rúmar 2,6 milljónir evra eða 400 milljónir íslenskra króna í rassvasanum. Heildarvinningsféð er rúmar níu milljónir evra eða tæpir tveir milljarðar íslenskra króna. „Mótið er í lok apríl, við Sveppi förum, hann fær samt ekkert að taka þátt í mótinu sjálfu heldur verður hent í eitthvert hliðarmót," segir Auðunn í samtali við Fréttablaðið en þeir félagar hyggjast gera sjónvarpsþátt um þátttöku Auðuns á mótinu. Margar af skærustu stjörnum pókerheimsins hafa vanið komur sínar á mótið en Auðunn er hvergi banginn. Hlakkar bara til að reyna sig við menn á borð við Phil Ivey og Daniel Negreanu. Köngulóarmaðurinn fyrrverandi Tobey Maguire hefur tekið þátt í mótinu en hann þykir nokkuð lunkinn með spilin. 935 pókerspilarar taka þátt í mótinu en Auðunn segist ekki vita hvað hann geri ef hann sigri. „Ég bara veit það ekki, ég myndi allavega ekki hætta í sjónvarpi."- fgg
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira