Sápukúlur hjá Jónsa 27. desember 2010 06:00 Jónsi og hljómsveit hans bregða á leik baksviðs. Sápukúlur verða blásnar á tónleikunum í Höllinni.
Aðdáendur Jóns Þórs Birgissonar, Jónsa, ætla að blása sápukúlur á tónleikum hans í Laugardalshöll 29. desember. Uppákoman verður í laginu Around Us af fyrstu sólóplötu hans Go. Einn af þeim 192 erlendu aðdáendum Jónsa sem ætla á tónleikana tilkynnti þetta á Facebook-síðu Jónsa. „Stóra planið okkar er að á meðan lagið Around Us hljómar blásum við helling af sápukúlum í loftið, þið vitið eins og þegar við vorum krakkar. Sjáumst öll á tónleikunum með sápukúlur í kringum okkur." Aðrir hafa rætt um að mæta með skrítna dýrahatta á tónleikana til að skapa skemmtilega stemningu. Stutt er síðan suður-kóreskir aðdáendur Jónsa tóku höndum saman og fylltu sviðið af skutlum í einu laginu og vilja aðdáendurnir í Höllinni ekki vera minni menn. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá munu 192 útlendingar frá 21 landi fljúga hingað til lands gagngert til að fylgjast með tónleikunum. Flestir koma frá Bandaríkjunum og Bretlandi, eða 98 talsins, 34 koma frá Frakklandi og Þýskalandi og tíu frá Japan. Aðrir aðdáendur Jónsa koma meðal annars frá Rússlandi, Ástralíu, Mexíkó og Ítalíu. Tónleikarnir verða þeir síðustu á risastórri tónleikaferð Jónsa um heiminn. Lúðrakvintettinn Brassgat í bala, með Samúel J. Samúelsson í fararbroddi, hitar upp. Enn eru til miðar í stæði.- fb
Mest lesið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Sjá meira