Centurion: þrjár stjörnur 2. júní 2010 06:45 Leikstjóri myndarinnar eyðir ekki miklu tíma í vesen og heldur dampi út í gegn.
Píslarsaga RómverjaBíó *** Centurion Leikstjóri: Neil Marshall Aðalhlutverk: Michael Fassbender, Dominic West, Olga KurylenkoQuintus Dias er vopnfimur og snjall hundraðshöfðingi í hernámsliði Rómverja á Englandi. Hann er sonur goðsagnarkennds skylmingaþræls og lærði herkænsku og fantabrögð af föður sínum. Herlið hans er í fremstu víglínu og á í mesta basli með andspyrnuhreyfingu innfæddra sem gerir Rómverjunum ítrekaðar skráveifur með skæruhernaði sínum.Eftir að hafa gengið milli bols og höfuðs á herdeild Quintusar tekur heimavarnaliðið hann til fanga til þess að pynta hann og yfirheyra áður en hann verður afhausaður. Quintus sleppur hins vegar við illan leik og gengur til liðs við hina mögnuðu Níundu herdeild sem hinn dáði Virilus stýrir. Þessu úrvalsliði er sigað á andspyrnufólkið þannig að Quintus þarf að æða aftur í flasið á þeim sem hann er nýsloppinn frá. Herleiðangurinn mistekst hrapallega og liðinu er nánast öllu slátrað og Quintus þarf því að leysa Virilius af og reyna að koma þeim örfáu sem eftir lifa heilum á húfi til Rómar.Þetta er hins vegar nánast vonlaust verk þar sem hermennirnir eru hundeltir af blóðþyrstum heimamönnum þar sem fremst fer í flokki valkyrjan ósigrandi Etain. Gellan sú er svo svakaleg að þeir sem til þekkja telja eins gott fyrir þá sem hún eltist við að skera sig bara sjálfir á háls til þess að spara sjálfum sér erfiði og óþægindi.Neil Marshall er sprækur leikstjóri sem hefur gert alveg ágætar spennumyndir með hryllingsívafi (Dog Soldiers, The Descent, Doomsday) og í Centurion notar hann ýmislegt úr fyrri myndum sínum. Bardagaatriðin eru „splatter" þar sem blóðið sullast og spýtist í allar áttir og ef hausar fjúka ekki af mönnum undan sverðalögum og axasveiflum þá beinlínis splundrast þeir bara þannig að meðferðin á blessuðum Rómverjunum er ekkert ósvipuð því sem stelpugreyin sem villtust í hellinn í The Descent máttu þola.Michael Fassbender er ofboðslega traustur leikari og einhver tilgerðar-lausasti töffari sem sést hefur í bíó lengi. Hann var fínn í hinni vanmetnu hryllingsmynd Eden Lake, frábær í Inglorious Basterds og klikkar ekki í hlutverki Quintusar. Toppmaður alveg hreint. Dominic West er fjallbrattur og sjarmerandi sem Virilius og það gustar af Olgu Kurylenko, sem er töff, kynþokkafull, snarbrjáluð og banvæn Etain.Marshall eyðir ekki miklum tíma í kjaftæði og vesen. Myndin byrjar með látum og heldur dampi út í gegn en samt nær maður að kynnast hermönnunum ágætlega þannig að manni er nú ekki sama um þá alla þegar þeir mæta spjótsoddi Etain. Marshall er hins vegar ekkert ýkja frumlegur og fetar býsna gamalkunnar og klisjulegar slóðir í handritinu en flott er þetta. Og skemmtilegt líka.Þórarinn ÞórarinssonNiðurstaða: Neil Marshall vinnur með stef og stemningar úr fyrri myndum sínum og finnur pælingum sínum nú stað í Bretlandi árið 117. Ásamt flottum leikurum, hörðum nöglum og svölum píum, tekst honum að gera úr þessu þrusugóða hasarmynd.
Mest lesið Kynlífssena sautján ára stúlku hafi splundrað samstarfi bræðranna Bíó og sjónvarp Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Tónlist Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Lífið „Ég er óléttur“ Lífið Klæðist því sem eykur sjálfstraustið Tíska og hönnun Fékk leyfi Nóbelskálds fyrir heiti nýrrar bókabúðar í Hamraborg Menning Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum Lífið „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Lífið Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Lífið samstarf Er Ormstunga djarfasta sýning ársins? Gagnrýni Fleiri fréttir Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Ragga Theó fann ástina hjá Davíð Þór Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Stjörnulífið: Fáklædd í fimbulkulda Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum „Er eðlilegt að kynlíf taki af mér stjórn og að ég sé upptekinn af kynlífi flesta daga?“ Gisti þar sem Verdi andaðist fyrir hreina tilviljun Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Sjá meira
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“