Í augnhæð barna 13. mars 2010 04:00 Traktor Manfreðs Vilhjálmssonar er meðal þeirra gripa sem eru til sýnis á sýningunni, Hann var upphaflega gerður fyrir son arkitektsins en var svo framleiddur í 80 eintökum í tilefni áttræðisafmælis Manfreðs árið 2008. „
Á þessari sýningu er verið að vinna með hugarheim barna, ímyndunarafl og þroska,“ segir Tinna Gunnarsdóttir, vöruhönnuður og sýningarstjóri sýningarinnar Í barnastærð sem opnuð verður í Hafnarborg í dag. Á henni gefur að líta leikföng og húsgögn sem sérstaklega eru hönnuð fyrir börn og sækja innblástur í leiki þeirra og hugmyndaheim. Sýningin er þó ekki bara hugsuð fyrir fullorðna heldur gefst börnum tækifæri á að leika sér, prófa kassabíla sem hafa verið smíðaðir fyrir tilefnið og byggja sér hús úr teppum og stólum svo dæmi séu tekin. „Hægt verður að dansa í einu herbergja safnsins, í sérstökum dansskóm sem eru þannig úr garði gerðir að ofan á þeim eru fastir barnaskór, þannig geta krakkar dansað ofan á ristinni á pabba eða mömmu. Svo verður listasmiðja starfrækt fyrir börnin,“ segir Tinna. Í aðalsal safnsins verður hönnun fyrir börn til sýnis, húsgögn og munir íslenskir sem erlendir. Og þó að þann hluta sýningarinnar megi bara skoða, ekki snerta, þá er gripunum stillt upp í augnhæð barna og þeim þannig gert auðvelt að njóta sýningarinnar. Megináhersla er á íslenska hönnun en mikill hluti sýningargripa er húsgögn og leikföng sem hönnuðir, arkitektar og listamenn hafa unnið fyrir sín eigin börn og ekki hafa farið í framleiðslu. Viðamikil dagskrá verður í boði fyrir gesti safnsins á öllum aldri en einnig er boðið upp á fræðslu fyrir skólahópa sem bæði geta tekið þátt í leiðsögnum og listsmiðjum. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu safnsins, www.hafnarborg.is.- sbt
Mest lesið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Menning Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Fleiri fréttir Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Sjá meira