Lífið

Örstutt jól keppir á þekktri nördahátíð í Texas-fylki

Ómar er einn af handritshöfum stuttmyndarinnar Örstutt jól sem verður sýnd á Fantastic Fest í Texas.fréttablaðið/gva
Ómar er einn af handritshöfum stuttmyndarinnar Örstutt jól sem verður sýnd á Fantastic Fest í Texas.fréttablaðið/gva

Stuttmyndin Örstutt jól í leikstjórn Árna „Súra" Jónssonar verður sýnd á kvikmyndahátíðinni Fantastic Fest í Austin í Texas í lok mánaðarins.

„Þetta er ákveðinn bónus að fá myndina þarna inn. Ég sendi hana inn eiginlega upp á djókið," segir Ómar Örn Hauksson, einn af handritshöfundunum. Hann viðurkennir að boðið á hátíðina hafi komið sér á óvart bæði vegna þess að Örstutt jól er fjögurra ára gömul og að hún hefur hvergi verið sýnd erlendis.

Ómar hefur tvívegis farið á Fantastic Fest, sem er nokkurs konar nördahátíð þar sem fantasíu- og hryllingsmyndir eru í hávegum hafðar. Hann hefur bæði farið sem aðdáandi og sem blaðamaður kvikmyndasíðunnar Twitchfilm.net en núna rætist gamall draumur með því að eiga sjálfur mynd á hátíðinni. „Fantastic Fest er búin að festa sig í sessi sem hátíð sem vert er að fara á. Þetta er sú hátíð sem mig langar mest að komast inn á með eitthvað," segir hann. „Þarna gefst manni kannski tækifæri til að koma stóru útgáfunni á framfæri því planið var að gera þessa mynd í fullri lengd. En við sjáum bara til," segir hann um Örstutt jól.

Mynd úr atriði í stuttmyndinni blóðugu, Örstutt jól.

Mikið verður um að vera á Fantastic Fest í ár. Frumsýningarmyndin verður Let Me In, endurgerð sænsku vampírumyndarinnar Låt den rätte komma in, og einnig verður Buried, nýjasta mynd Ryans Reynolds, frumsýnd og fólk verður grafið lifandi í kynningarskyni. Heiðursgestur verður Woo-ping Yuen, slagsmálahöfundur mynda á borð við The Matrix, Kill Bill 2 og Crouching Tiger, Hidden Dragon. Á síðasta ári voru leikararnir Sam Rockwell, Woody Harrelson og Alexander Skarsgård úr þáttunum True Blood á meðal gesta hátíðarinnar og árið áður mætti þangað Bill Murray. Ómar verður því væntanlega í góðum félagsskap í Texas í lok september.

Örstutt jól er blóðug, tíu mínútna mynd sem segir frá hópi afvegaleidds ungs fólks sem heldur langt upp í sveit til að losa sig frá öllum sínum djöflum. Með helstu hlutverk fara Laufey Elíasdóttir, Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson og Ari Matthíasson. -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.