Víða um land er tími kominn á hræringar 5. janúar 2010 05:15 Myndin er tekin fyrir nærri tveimur árum þegar hópur fólks gekk á Heklu. Á toppi hennar er gjarnan snjólaust vegna hita og gass sem stígur upp úr kvikuhólfum undir niðri. Bændur hafa vakið á því athygli að á kafla í suðurhlíðum fjallsins sé nú snjólaust, en goss hefur verið vænst í fjallinu um nokkurt skeið.Fréttablaðið/GVA
Jarðfræði Margt bendir til að hafið sé tímabil aukinnar jarðvirkni hér á landi, segir Ragnar Stefánsson, prófessor í jarðvárfræðum við Háskólann á Akureyri. Hann segir Suðurlandsskjálftana 2000 og 2008 kunna að hafa breytt aðstæðum á Suðurlandi og út á Reykjanes. Þá segir Ragnar víðar beðið jarðhræringa en í Heklu, en frá því hefur verið greint í fréttum að í henni sé þrýstingur í kvikuhólfum sambærilegur því sem var fyrir síðasta gos, auk þess sem hún „sé á tíma“ miðað við fyrri gos. Þannig megi út af fyrir sig vænta goss í Heklu og jafnvel víðar miðað við þá atburðarás sem verið hefur í seinni tíð. „En það er nú þannig í náttúrunni að hún fylgir ekki alltaf svona tölfræði. Frá síðasta gosi í Heklu hafa orðið gríðarlegar breytingar með Suðurlandsskjálftunum. Þá verður mikil færsla um allt Suðurland og aðstæður breytast mjög. Ekki er ólíklegt að tímaröðin sem varð í Heklu frá 1970 raskist.“ Ragnar segir því ómögulegt að spá fyrir um hvenær Hekla kunni að gjósa, aðdragandi að smágosum í henni hafi verið skammur og ekki annað að gera en vakta vel jarðskjálftamæla. Þá þurfi ekki að vera vísbending um gos þótt snjór bráðni hér og þar í fjallinu. Gufa og hiti geti leitað upp vegna kvikuhreyfinga á fimm til tíu kílómetra dýpi og valdið snjóbráð, án þess að gos sé í vændum. „Varðandi Kötlugos þá reikna menn hins vegar með meiri og skýrari aðdraganda, jafnvel í sólarhring á undan,“ segir Ragnar, en aðdragandi stórgosa úr eldkeilum sé lengri en þekkist frá smágosum seinni ára í Heklu. „Sama gildir um stór Heklugos, líkt og 1947 og þaðan af stærri Heklugos í fortíðinni. Aðdragandi er miklu lengri að þeim.“ Eftir því sem best er vitað segir Ragnar tíma kominn á hræringar víða um land. „Bara hérna á Reykjanesskaganum, vestur af Henglinum, finnst manni kominn tími á einhverja jarðskjálftavirkni meira en verið hefur. Eins er það á miðhálendinu, suður af Öskju og milli Öskju og Bárðarbungu. Þar eru í gangi smáskjálftar sem benda til þess að einhver kvikuinnskot spenni upp svæðið.“ Aukinheldur segir Ragnar að tími sé kominn á meiri háttar skjálfta á Húsavíkur-Flateyjarsprungunni, sem kynni að verða meira úti í sjó, þótt það sé ekki öruggt. „En þótt margt sé komið á tíma, þá getur tekið áratugi að eitthvað gerist í því.“olikr@frettabladid.is Varað við hættu Skilti sem er til reiðu við Mýrdalssand og notað til að loka veginum þar um skapist hættuástand vegna goss í Kötlu. Mynd/Njörður Helgason
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Sjá meira