Gefur út spennusögu um sjúkan heim útrásarvíkinga 6. október 2010 17:00 Fyrsta bók Óskars Hrafns Þorvaldssonar, Martröð millanna, kemur út í lok mánaðarins. Höfundurinn segir að einhverjar persónur í bókinni séu byggðar á kynnum hans af útrásarvíkingum og fjölmiðlafólki. Fréttablaðið/Anton „
Þeir sem hafa lesið bókina segjast þekkja hluti úr fari ákveðinna manna í ákveðnum persónum. Ég get svo sem ekki neitað því að þeir sem hafa verið í framlínu sveitar svokallaðra útrásarvíkinga gætu kannast við sig í þessari bók," segir Óskar Hrafn Þorvaldsson fréttastjóri. Fyrsta bók Óskars kemur út í lok október á vegum Forlagsins, spennusaga sem hlotið hefur nafnið Martröð millanna. Óskar segir það ekki hafa verið sérstakt metnaðarmál að persónurnar væru byggðar á þjóðþekktum fyrirmyndum, en bætir við að efniviðurinn hafi verið fyrir framan hann og persónurnar dragi dám af því. „Þetta er bók um athafnir og örlög nokkurra útrásarvíkinga. Einn þeirra er myrtur og inn í söguna fléttast lesblindur útrásarvíkingur, siðblindur bankamaður, belgískir demantakaupmenn, rússneska mafían, súlustaðakóngur sem stígur ekki í vitið og seinheppinn leigumorðingi frá Litháen," segir Óskar þegar hann er beðinn að lýsa bók sinni. Óskar hefur starfað sem blaðamaður í um áratug og hefur oft vakið athygli fyrir störf sín. Hann hætti sem fréttastjóri Stöðvar 2 síðasta vor og sneri sér þá að skrifum. „Ég var búinn að ganga með þetta í maganum lengi, sagan hafði að einhverju leyti mótast í hausnum í langan tíma. Eftir að ég hætti á Stöð 2 hafði ég allt í einu fullt af tíma sem ég hafði ekki áður og byrjaði að skrifa. Laufey konan mín hjálpaði mér mikið og barði mig áfram. Án hennar hefði þessi bók aldrei komið út." Óskar hefur í gegnum tíðina fjallað talsvert um íslenskt viðskiptalíf og útrásarvíkinga. Honum þótti því liggja beint við að nýta sér þá þekkingu sem hann býr yfir við bókarskrifin. „Þetta er það svið sem ég hef sinnt mest og fylgst hvað best með. Í bókinni er reynt að varpa ljósi á yfirgengilegan lífsstíl, óhóf og munað. Þetta er heimur sem fólk hefur fengið að gægjast inn í en þegar kafað er aðeins dýpra held ég að öllum verði ljóst að í þessum heimi er fólginn ákveðinn sjúkleiki." Aðspurður segir Óskar að hann væri alveg til í að skrifa fleiri bækur, hann sé þegar með tvær aðrar sögur í kollinum. „En maður verður að hlusta á fólkið. Ef það skapast áhugi hjá fólki þá koma ábyggilega fleiri bækur, ef það þarf að brenna óselt upplagið þá pirra ég íslenska bókaunnendur líklega ekki meira," segir rithöfundurinn, sem tekur sjálfan sig ekki mjög hátíðlega: „Ég lít ekki á þessa bók sem epískt stórvirki. Stefnan var að búa til bók sem fólk gæti skemmt sér yfir og ég vona að það hafi tekist." hdm@frettabladid.is
Mest lesið Urður yfirgefur Kastljós Lífið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Lífið Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Lífið Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Lífið Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Tónlist Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Menning Fleiri fréttir Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Sjá meira