Vekur athygli þýskra bloggara 3. september 2010 20:00 Baldvin Dungal rekur verslunina Glad I Never í miðborg Berlínar. Fjallað var um verslunina á þýsku netsjónvarpsstöðinni Berlinfashion.tv.
Fjallað var um verslunina Glad I Never á þýsku netsjónvarpsstöðinni Berlinfashion.tv fyrir skemmstu, en verslunin er í eigu Íslendingsins Baldvins Dungal og var opnuð í desember síðastliðinn. „Stúlkan sem sér um þennan tískuþátt gengur um borgina og finnur skemmtilegar búðir sem hún fær svo leyfi til að fjalla um. Glad I Never er ekki búin að vera það lengi til að maður afþakkar ekki ókeypis augýsingu þannig ég spjallaði við hana í tæpa klukkustund og sýndi henni búðina. Ég hef bara horft á myndbandið einu sinni því ég varð svo pirraður á öllum málfræðivillunum hjá mér," segir Baldvin og hlær. Hann rekur verslunina í samstarfi við móður sína, Elínu Kjartansdóttur, og Elsu Maríu Blöndal, söngkonu og fatahönnunarnema. Aðspurður segist Baldvin hafa fengið hina ýmsu tískubloggara í heimsókn síðan verslunin var opnuð og segir slíka umfjöllun góða fyrir viðskiptin. „Það koma alltaf einhverjir viðskiptavinir að skoða sem segjast hafa lesið umfjöllun um verslunina á netinu, en það verður þó aldrei nein sprenging í kúnnafjölda eftir svona umfjöllun." Að sögn Baldvins gengur rekstur verslunarinnar ágætlega og fjölgar viðskiptavinunum með hverjum mánuði. „Ætli það megi ekki segja að þetta sé rekið á sléttu en þetta batnar alltaf með hverjum mánuðinum, þannig það er góð ástæða til að vera bjartsýnn. Við reynum líka að vekja athygli á okkur með því að hafa skemmtilegar uppákomur í versluninni minnst einu sinni í mánuði og það hefur reynst vel." segir Baldvin. -sm Hér má sjá umfjöllun berlinfashion.tv um Glad I Never.
Mest lesið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Lífið GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Stjörnur fjármálabransans komu saman Lífið Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Lífið Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Lífið Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Tónlist Fleiri fréttir GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Sjá meira