Herra Pottur og ungfrú Lok: þrjár stjörnur 1. júní 2010 00:01 Sólveig Simha leikur á als oddi í brúðu- og tónlistarsýningu Óperarctic-félagið, Listahátíðar og Þjóðleikhússins í Kúlunni. Mynd/Eddi
Eldhúsið lifnar viðLeikhús *** Herra Pottur og ungfrú Lok Tónaævintýri fyrir börn eftir Bohuslav Martinu byggt á sögu eftir Christopher Garda. Sögumaður og leikari: Sólveig Simha Þýðing: Hlöðver Ellertsson Leikmynd, brúður og búningar: Katrín Þorvaldsdóttir Hljóð og ljós: Kristinn Gauti Einarsson Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir Í ævintýralegri leikmynd birtist okkur stúlka sem segir okkur frá innviðum eldhússins þar sem potturinn er í aðalhlutverki. Hann á í nánu sambandi við lokið sem er ungfrú Lok en lætur glepjast af daðurdrósinni Kvörn sem dillar sér og tekst nánast að draga hann á tálar. Klútur lifnar líka við og verður hluti af leiknum sem og strangur sópur sem birtist í líki lögreglumanns. Meðan sagan er sögð hljóma tónar sem sex hljóðfæraleikarar skapa í flottum þykjustuhermannaklæðum.Þetta eru persónur sem verða til í draumi litla drengsins Bohuslavs sem sýndur er sem agnarlítil brúða og lagður til hvílu í pínulitlu rúmi í upphafi leiks. Hér blandast amerísk og evrópsk tónlistarhefð frá upphafi aldarinnar sem leið og smeygir sér inn í frásögn sögumannsins. Þetta var falleg og vel unnin mynd og skemmtileg blanda af tónum og brúðuleik. Þegar stúlkan birtist í myrkrinu og með simssalabims hreyfingum kveikir ljós í ýmsum skúmaskotum eldhússins kviknar á eftirtektinni hjá smáfólkinu einnig.Sagan sjálf er kannski ekki alveg nógu grípandi fyrir minnstu börnin en úrvinnslan einstaklega heillandi. Sólveig Simha talar lýtalausa íslensku þó henni sé greinilega franskan tamari og það var skemmtilegt þegar hún brá fyrir sig franskri tungu inn á milli. Hún hefur einkar gott vald á látbragði trúðsins án þess að um nokkurn yfirleik sé að ræða. Hreyfingar hennar og svipbrigði fönguðu athygli allra og litlir munnar stóðu opnir í hálfa gátt.Sýningin verður síðar einnig sýnd algerlega á frönsku. Leikmynd Katrínar Þorvaldsdóttur minnti á þöglu myndirnar. Draugalegt en þó svo heillandi eldhúsið leiddi hugann inn í ævintýralandið. Það er ekki erfitt að ímynda sér hvernig verkið í upphafi var hugsað sem ballett. Hér er verið að kynna töfraheim klassískrar tónlistar fyrir börn og tekst vel til þó svo að rýmið hafi verið heldur þröngt fyrir þennan öfluga tónlistarflokk. Markmið hópsins er að vekja áhuga á þessu samfléttaða listformi fyrir yngstu áhorfendurna, það er rödd, sagan, líkaminn og hljóðfærin.Tónskáldið Bohuslav Martinu (1890-1959) vakti mikla athygli í Parísarborg þegar verkið La revue de cusine var fyrst sýnt sem ballett árið 1927. Það er svo árið 2007 sem verkið var frumflutt í þeirri mynd sem það birtist hér. Sólveig Sihma tók þá þátt í upptökum á vegum franska útgefandans Intrada og síðan þýddi Hlöðver Ellertsson söguna á íslensku. Þetta er heildstætt listaverk alls ekki síður ætlað fullorðnum en börnum. Uppfærslan er í samvinnu við Óperarctic-félagið og sú fyrsta sinnar tegundar hérlendis.Elísabet BrekkanNiðurstaða: Það er alveg óhætt að mæla með þessum menningarviðburði fyrir alla aldurshópa.
Tengdar fréttir Passar sem lok á pott Á morgun verður nýtt leik- og tónverk fyrir börn, Herra Pottur og ungfrú Lok, frumsýnt í Kúlunni, barnaleiksviði Þjóðleikhússins. Sýningin er bræðingur tónlistar eftir Bohuslav Martinu frá 1927 og sögu Christhophe Garda frá 2007 sem í fyrsta sinn er sögð í sviðsuppfærslu á Íslandi fyrir tilstilli Óperarctic félagsins. 28. maí 2010 07:30 Mest lesið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Tónlist Fleiri fréttir Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Sjá meira
Passar sem lok á pott Á morgun verður nýtt leik- og tónverk fyrir börn, Herra Pottur og ungfrú Lok, frumsýnt í Kúlunni, barnaleiksviði Þjóðleikhússins. Sýningin er bræðingur tónlistar eftir Bohuslav Martinu frá 1927 og sögu Christhophe Garda frá 2007 sem í fyrsta sinn er sögð í sviðsuppfærslu á Íslandi fyrir tilstilli Óperarctic félagsins. 28. maí 2010 07:30