Trommarar bestir í rúminu 22. september 2010 06:00 Á Trommaranum 2010 verður meðal annars tilkynnt um úrslit í keppninni Leitin að Trommaranum.
Trommarasýning verður haldin í Reykjavík í október. Nonni kjuði í Diktu segir enga lognmollu í kringum trommara og þeir séu þekktir fyrir að vera rekkjunautar í hæsta gæðaflokki. „Þetta eru hágæða einstaklingar. Það er aldrei nein lognmolla í kringum okkur," segir Nonni kjuði eða Jón Þór Sigurðsson, trommari Diktu, um trommuleikara almennt. Sýningin Trommarinn 2010 verður haldin í annað sinn í sal FÍH 16. október og af því tilefni brugðu nokkrir trommarar á leik í Hljóðfærahúsinu fyrir ljósmyndara Fréttablaðsins. „Svo þurfum við að vera taktfastir og hafa úthald. Það er kannski ástæðan fyrir því að trommuleikarar eru umtalaðir sem A-klassa rekkjunautar. Það gæti verið eitthvert samansammerki þarna á milli," segir Nonni og hlær. Hann útskýrir að trommarar láti oft sem þeir vilji vera á bak við tjöldin en raunin sé allt önnur. „Phil Collins, Dave Grohl og allir þessir karlar hafa sýnt okkur að á endanum komumst við fremst. Það er draumur allra trommuleikara, annaðhvort að færa trommusettið fremst eða að komast fremst á bak við míkrafóninn." Nonni byrjaði sjálfur að tromma þegar hann var fjórtán ára en upphaflega vildi hann verða gítarleikari. „Bróðir minn átti trommusett og ætli það hafi ekki verið orsökin fyrir því að ég lærði eitthvað á þetta. Hann kenndi mér allt sem ég kann." Á Trommaranum 2010 munu hljóðfæraverslanirnar Hljóðfærahúsið/Tónabúðin, Rín og Tónastöðin vera með allt það nýjasta í trommum og slagverki til sýnis. Íslenskir trommusmiðir munu sýna handverk sitt og hópur trommuleikara stígur á svið, þar á meðal Sigtryggur Baldursson, Ólafur Hólm og Kjuðinn. Veitt verður viðurkenning fyrir ævistarf í þágu trommulistarinnar auk þess sem úrslit verða kynnt í keppninni Leitin að Trommaranum. Í þeirri keppni geta trommarar sent inn myndbönd af sér með kjuðana á lofti. Skilafrestur er til 6. október á netfangið trommarinn2010@trommarinn.is.
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira