Stefán Máni hrósar Gillz 22. desember 2010 06:00 Vinsæll meðal fransmanna Stefán Máni á glæpasögu ársins að mati franska menningartímaritsins Lire en Skipið eftir höfundinn hefur notið mikilla vinsælda í Frakklandi á þessu ári. Fréttablaðið/Arnþór
Stefán Máni Sigþórsson tekur ekki þátt í jólabókaflóðinu í ár en á engu að síður glæpasögu ársins í Frakklandi. Stefán kveðst stoltur af Agli Gillz Einarssyni og auglýsingu hans sem gjaldfelldi stjörnugjafir á einu bretti. Franska menningartímaritið Lire valdi nýlega spennutrylli Stefáns Mána, Skipið, sem glæpasögu ársins og bókin er nú á leið í fjórðu prentun hjá frönskum forleggjara Stefáns. „Frakkar eru miklir smekkmenn og sjálfur er ég mikill aðdáandi franskrar menningar. Frakkar virðast alveg skilja hvað ég er að hugsa og hvað ég er að meina, það ríkir gagnkvæmur skilningur okkar á milli," segir Stefán. „Franskir lesendur eru eiginlega algjörir draumalesendur og ég finn það þarna úti að þeir fatta mig alveg." Stefán Máni segist allaf hafa alið með sér þann draum að fá bók gefna út í Frakklandi og sú velgengni sem hann njóti þar í landi sé draumi líkust, meira að segja útgefandinn hans skilji ekkert í þessum vinsældum. Stefán bætist í hóp íslenskra glæpasagnahöfunda sem náð hafa ágætis árangri meðal menningarþjóðarinnar því bæði Árni Þórarinsson og auðvitað Arnaldur Indriðason hafa slegið í gegn í glæpasagnaflokknum. „Ég er búinn að fara til Frakklands tvisvar á þessu ári og verð mikið var við að fólk hafi lesið Arnald, hinn almenni lesandi þekkir hann og reynir oft að lesa bækur eftir höfund frá sama landi. Sjálfur hafði ég eiginlega ekki hugmynd um hversu góð landkynning bókin er því fólk virðist yfirleitt tengja bókina við landið sem hún kemur frá." Stefán tekur ekki þátt í jólabókaflóðinu í ár en verður með bók á því næsta, hálfgerða ævisögu um lögreglumann frá Súðavík. „Þetta er stór og mikil Íslandssaga, mjög dramatísk og mikil bók, örlagasaga," segir Stefán en árið 2011 gæti orðið ansi stórt í hans lífi. Allt bendir til þess að kvikmyndin Svartur á leik verði einnig frumsýnd á árinu en hún er byggð á samnefndri bók Stefáns Mána. „2011 verður árið mitt, ég er alveg viss um það og stend við þau stóru orð." Fjarveran úr jólabókaflóðinu gefur Stefáni Mána jafnframt nýja sýn á harðan auglýsingaheim jólabókanna. Hann segist til að mynda hafa kolfallið fyrir heilsíðuauglýsingu Egils „Gillz" Einarssonar sem birtist í Fréttablaðinu í vikunni en þar var ný bók rithöfundarins kynnt til leiks. Á auglýsingunni mátti sjá umsagnir þjóðþekktra einstaklinga og stjörnugjöf þeirra; allir gáfu honum fullt hús. „Þetta var hinn nauðsynlegi dropi sem fyllti mælinn. Auglýsingin var augljóslega grín en svo stutt frá þessum veruleika sem við þekkjum: bókaútgefendur að pikka upp dóma á blogginu og athugasemdafærslum og allir eru allt í einu orðnir gagnrýnendur og þá um leið enginn," segir Stefán og bætir því við að ekkert sé lengur að marka allar þessar stjörnur sem flæði út um allt. „Það virðast allir geta skreytt sig með þeim og Gillz tók þetta bara alla leið." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Lífið Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Lífið Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið Gull og gimsteinar leynast víða Lífið Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Lífið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Fleiri fréttir Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Sjá meira