Lífið

Justin Bieber slær Eminem og Lady Gaga við á Youtube

Vinsældir Justins Bieber eru með ólíkindum.
nordicphotos/getty
Vinsældir Justins Bieber eru með ólíkindum. nordicphotos/getty
Ef Justin Bieber væri Íslendingur hefði hann verið fermdur fyrir tveimur árum. Hann er orðinn alþjóðleg ofurstjarna – á einu ári. Bieber bætti enn einni rósinni í hnappagatið á dögunum þegar kom í ljós að myndband hans við lagið Baby var það vinsælasta á Youtube á árinu.

Myndband hjartaknúsarans barnunga, Justin Bieber, við lagið Baby er vinsælasta myndband vefsíðunnar Youtube á árinu. Örvæntingarfullar unglingsstúlkur og fjölskyldufeður í afneitun hafa horft meira en 407 milljón sinnum á myndbandið, sem kom út 12. febrúar í ár. Það þýðir að horft hefur verið á myndbandið 1,3 milljón sinnum á dag frá því að það kom út. Ótrúlegur árangur hjá kanadíska undrabarninu.

Youtube tilkynnti á sunnudag að myndbandið væri það vinsælasta á árinu. Mia Quagliarello, yfirmaður hjá Youtube, segir vinsældir á Youtube endurspegla áhuga fólks og hvað vekur mesta athygli. Fréttirnar eru athyglisverðar í ljósi þess að lagið Baby náði aldrei toppi Billboard-vinsældalistans, sem hefur hingað til þótt endurspegla hvaða tónlist er vinsælust í Bandaríkjunum.

Bieber skýtur listamönnum á borð við Shakiru, Rihönnu, Eminem og Lady Gaga ref fyrir rass, en þau raða sér í næstu sæti topp 10-listans, auk þess sem Bieber á þar þrjú myndbönd til viðbótar. Uppgangur Justins Biber hefur verið ótrúlegur, en hann gaf út fyrstu plötuna sína, My World, í fyrra. Hún fór á toppinn víða um heim og hann fylgdi henni eftir með My World 2.0 á þessu ári auk þess sem hann sendi frá sér My World Accoustic, sem inniheldur órafmagnaðar útgáfur af lögum hans.

atlifannar@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.