Lífið

Prince skuldar peninga

Prince á ekki sjö dagana sæla og veskið hans virðist dæmt til að tæmast.
Prince á ekki sjö dagana sæla og veskið hans virðist dæmt til að tæmast.

Óveðursskýin hrannast upp hjá bandaríska tónlistarmanninum Prince. Eins og fjölmiðlar greindu frá í gær skuldar hann himinháar upphæðir í fasteignagjöld og í gær varð hann fyrir enn einu fjárhagslega áfallinu. Írskt tónleikahaldsfyrirtæki að nafni MCD fór í mál við Prince eftir að hann ákvað að fresta tónleikum sínum í landinu með aðeins nokkurra daga fyrirvara. Forsvarsmenn MCD fóru ekki fram á neina skiptimynt heldur um 400 milljónir íslenskra króna.

Umrætt mál hefur verið í gangi síðan í febrúar en þá ákváðu tónleikahaldarar og Prince að semja um greiðslu utan dómstóla. Þegar sú greiðsla barst hins vegar ekki og hvorki heyrðist hósti né stuna frá hinum smávaxna listamanni fór MCD í hart og fékk sitt fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.