Norræni sjóðurinn hafnaði Frímanni 19. febrúar 2010 04:00 Synjað Þáttaröð Gunnars Hanssonar fékk ekki styrk hjá Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðum. Stöð 2 skrifaði sjóðnum bréf í fyrsta skipti og óskaði eftir því að sú ákvörðun yrði endurskoðuð. Matt Berry og Frank Hvam eru meðal þeirra sem koma fram.
Norræni sjónvarps-og kvikmyndasjóðurinn hafnaði því að styrkja sjónvarpsþáttaröð sem Gunnar Hansson og bróðir hans, Ragnar Hansson, hafa verið að gera með mörgum af fremstu grínistum Norðurlandanna. Stöð 2 sætti sig ekki við niðurstöðu sjóðsins og hefur skrifað honum bréf þar sem farið er fram á að sjóðurinn endurskoði ákvörðun sína. „Við borgum í þennan sjóð og við fórum fram á það við þá að þeir tækju umsóknina aftur til umfjöllunar,“ segir Pálmi Guðmundsson hjá Stöð 2. Hann segir þættina vera einstaklega frumlega og þeir hefðu þennan samnorræna brag. „Við höfum aldrei þurft að gera þetta áður en þetta sýnir kannski líka hvað við höfum mikla trú á þessum þáttum.“ Hið sama hefur danska sjónvarpsstöðin TV 2 gert sem hefur þegar keypt sýningarréttinn. Til stóð að RÚV myndi sýna þættina en Stöð 2 virðist vera með forskot í því kapphlaupi. Fréttablaðið hefur fylgst náið með gerð þáttaraðarinnar en meðal þeirra sem koma fram í henni eru Jón Gnarr, Björn Gustafsson og síðast en ekki síst Klovn-stjarnan Frank Hvam en Frímann og Hvam hittust meðal annars á Laundromat-kaffihúsi Friðriks Weisshappel fyrir skemmstu. Þá upplýsti Gunnar í viðtali við Tvíhöfða um helgina að samkomulag við breska grínistann Matt Berry væri í höfn og hann myndi koma fram í þáttunum.- fgg
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Britney farin í meðferð Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Fleiri fréttir Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Sjá meira