Lífið

Norræni sjóðurinn hafnaði Frímanni

Synjað Þáttaröð Gunnars Hanssonar fékk ekki styrk hjá Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðum. Stöð 2 skrifaði sjóðnum bréf í fyrsta skipti og óskaði eftir því að sú ákvörðun yrði endurskoðuð. Matt Berry og Frank Hvam eru meðal þeirra sem koma fram.
Synjað Þáttaröð Gunnars Hanssonar fékk ekki styrk hjá Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðum. Stöð 2 skrifaði sjóðnum bréf í fyrsta skipti og óskaði eftir því að sú ákvörðun yrði endurskoðuð. Matt Berry og Frank Hvam eru meðal þeirra sem koma fram.

Norræni sjónvarps-og kvikmyndasjóðurinn hafnaði því að styrkja sjónvarpsþáttaröð sem Gunnar Hansson og bróðir hans, Ragnar Hansson, hafa verið að gera með mörgum af fremstu grínistum Norðurlandanna.

Stöð 2 sætti sig ekki við niðurstöðu sjóðsins og hefur skrifað honum bréf þar sem farið er fram á að sjóðurinn endurskoði ákvörðun sína.

„Við borgum í þennan sjóð og við fórum fram á það við þá að þeir tækju umsóknina aftur til umfjöllunar,“ segir Pálmi Guðmundsson hjá Stöð 2. Hann segir þættina vera einstaklega frumlega og þeir hefðu þennan samnorræna brag.

„Við höfum aldrei þurft að gera þetta áður en þetta sýnir kannski líka hvað við höfum mikla trú á þessum þáttum.“ Hið sama hefur danska sjónvarpsstöðin TV 2 gert sem hefur þegar keypt sýningarréttinn. Til stóð að RÚV myndi sýna þættina en Stöð 2 virðist vera með forskot í því kapphlaupi.

Fréttablaðið hefur fylgst náið með gerð þáttaraðarinnar en meðal þeirra sem koma fram í henni eru Jón Gnarr, Björn Gustafsson og síðast en ekki síst Klovn-stjarnan Frank Hvam en Frímann og Hvam hittust meðal annars á Laundromat-kaffihúsi Friðriks Weisshappel fyrir skemmstu. Þá upplýsti Gunnar í viðtali við Tvíhöfða um helgina að samkomulag við breska grínistann Matt Berry væri í höfn og hann myndi koma fram í þáttunum.- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.