Láta Haffa Haff hljóma vel 16. mars 2010 05:00 stop wait go Pálmi, Ásgeir og Sæþór – með The Charlies og Haffa á verkefnaskránni.fréttablaðið/valli
Upptökugengið Stop Wait Go; bræðurnir Pálmi Ragnar Ásgeirsson og Ásgeir Orri Ásgeirsson, og vinur þeirra Sæþór Kristjánsson hafa mörg járn í eldinum um þessar mundir, koma meðal annars mikið við sögu á væntanlegri plötu Haffa Haff. „Sæþór er vinur okkur bræðranna úr grunnskóla svo „we go way back“, eins og maður segir,“ segir Pálmi, sem er fæddur 1989. Hinir eru 1990 módel. „Sæþór og Ásgeir voru í hljómsveit sem hét Kicks og gaf út nokkur lög á Netinu. Þannig fréttu Nylon-stelpurnar af okkur og þá byrjaði þetta allt. Við erum búnir að vinna með þeim síðan áður en þær komust á samninginn úti. Höfum samið og tekið upp með þeim í eitt og hálft ár núna. Þetta efni hefur verið að fá góðar viðtökur úti og núna er verið að vinna að því að koma þessum lögum út. Vonandi gerist það á þessu ári eða næsta.“ Vinnan með The Charlies er bara hluti af verkefnalista Stop Wait Go. „Við erum að semja og „pródúsera“ titillagið á nýju Haffa plötunni, Freak, auk flestra nýju laganna þar. Kannski verðum við með eitt, tvö lög á plötunni hans Friðriks Dórs. Við þekkjum hann úr Versló. Svo var Friðrik Ómar að hringja og hefur áhuga á að gera Gaypride-lagið í ár með okkur.“ Pálmi segir ýmsa tónlistarmenn hafa haft áhrif á þá. „Max Martin og Dr. Luke og þessir gaurar hafa áhrif þegar við erum að semja og svo eru „pródúserar“ eins og The-Dream, Tricky Stewart, The Clutch og sænskir gaurar sem heita Bloodshy & Avant, sem gerðu Blackout-plötuna hennar Britney Spears.“ Pálmi segir samstarf Stop Wait Go ganga smurt, þeir semja og útsetja í kross. Það er framsækni í þessari deild poppsins. „Lög eru alltaf eins, það skiptir ekki öllu máli á hvaða tíma þau eru samin,“ segir hann. „Hins vegar er það útsetningin og „pródúseringin“ sem tekur framförum og breytist með tímanum. Það er það sem er mest spennandi við þetta núna. Allt þetta nýja sánd.“ Fyrsta verkefni Stop Wait Go sem heyrist opinberlega, „Freak“ með Haffa Haff, fer í spilun eftir sirka mánuð en svo ættu fleiri lög að hrúgast inn. drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Hvað veistu um… Titanic? Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira