Lífið

Bræður á topplista

Friðrik Dór og Jón Jónssynir bakka hvorn annan upp í tónlistinni. fréttablaðið/vilhelm
Friðrik Dór og Jón Jónssynir bakka hvorn annan upp í tónlistinni. fréttablaðið/vilhelm
Bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónssynir gera það báðir gott í poppinu og eiga lög á vinsælarlistum.

„Ég held að salan á plötunni gangi bara mjög fínt,” segir Friðrik Dór Jónsson sem á dögunum gaf út plötuna Allt sem þú átt, en hún er í 3. sæti á Tónlist.is. Það er ekki aðeins að platan sé ofarlega á plötulistanum, heldur á Friðrik hlut í þremur lögum á öðrum topplista Tónlistar.is. Það eru lögin Til í allt, Hún er alveg með’etta og Keyrumettígang, sem hann syngur með Erpi og Henriki Biering.

„Það er ágætt ef að platan er að fá fínar viðtökur, ég stefni nú á slatta seld eintök fyrir jólin,” segir Friðrik Dór. Athyglisvert er að sjá að í neðsta sæti listans situr eldri bróðir Friðriks, Jón Jónsson, með lagið Kiss in the Morning. „Hann er búinn að vera á einhverjum Bylgjulistum og ég á einhverjum FM-listum, svo það er gaman að vera saman á lista svona einu sinni. En mín þrjú lög eru samt öll fyrir ofan hans lag,” segir Friðrik og hlær.

Jón segir engan meting vera á milli þeirra bræðra. „Ég átti afmæli tveimur dögum eftir að platan hans Frikka kom út og hann ætlaði að gefa mér hana í afmælisgjöf. Ég afþakkaði það því ég vildi sjálfur fara og kaupa plötuna. Maður verður að bakka litla bróður upp í þessu,” segir Jón og bætir við að það sé hægara sagt en gert að nálgast eintak af plötunni í gegnum fjölskylduna. „Krakkarnir sem eru að hlusta á Frikka eru að hlaða tónlistinni niður af netinu, svo maður verður að vera svolítið harður í þessu.”

Á plötunni hans Friðriks Dórs má finna dúett með þeim bræðrum. Lagið heitir „Það ert þú“. “Þetta er alveg rándýr dúett,” segir Friðrik, léttur í bragði, en lagið er í RnB fíling eins og platan hans í heild sinni.

Jón hefur lengi æft fótbolta og því vert að spyrja hvort hann ætli að leggja takkaskóna á hilluna og einbeita sér alveg að tónlistinni. „Nei ég ætla nú líka að halda áfram í boltanum. Ég var reyndar að koma úr hnéaðgerð, svo ég er ekki alveg í standi eins og er, en ég verð kominn á fullt í vor,” segir Jón, sem spilar með FH. „Það kemur vonandi plata frá mér á nýju ári. Ég á allavega fullt af lögum sem þarf bara að vinna aðeins meira í,” segir Jón. „Þá kannski treð ég mér fyrir ofan Frikka á þessum listum,” segir Jón og hlær.

kristjana@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.