Týndar upptökur komnar í leitirnar 23. júlí 2010 19:00 Örn Árnason, Sigurður Sigurjónsson og Karl Ágúst Úlfsson með týndu upptökurnar af Harry og Heimi. fréttablaðið/anton
Leikararnir Örn Árnason, Sigurður Sigurjónsson og Karl Ágúst Úlfsson, mennirnir á bak við einkaspæjarana Harry og Heimi, fengu í gær afhendar týndar upptökur af tveimur útvarpsþáttum sínum frá árinu 1993. „Þetta sparar okkur gríðarlega vinnu,“ segir Örn, alveg í skýjunum. Þeir félagar ætla að gefa út seinni þáttaseríu sína af Harry og Heimi á geisladiski í byrjun september og inniheldur hún fjörutíu þætti, eða yfir tvö hundruð mínútur. Þeir auglýstu á Bylgjunni, þar sem Harry og Heimi var útvarpað á sínum tíma, að þá vantaði tvo þætti í safnið sem höfðu glatast. „Við fórum þess á leit við hlustendur Bylgunnar að þeir gætu hjálpað okkur með þætti 33 og 34 og tveir menn gáfu sig fram,“ segir Örn. Þeir heita Björgvin Þór Björgvinsson og Guðmundur Sverrisson og höfðu þeir tekið þættina upp á kassettu á sínum tíma. „Við að sjálfsögðu erfum það ekki við þá heldur erum ánægðir með að þeir gátu hjálpað okkur að loka seríunni.“ Fyrri serían af Harry og Heimi kom út á geisladiski á síðasta ári og í framhaldinu settu þeir upp vel sótta leiksýningu í Borgarleikhúsinu síðasta haust, sem var byggð á seríunni sem nú kemur út. Sýningin gekk í heila sjö mánuði fyrir fullu húsi. Rúm tuttugu þúsund manns sáu hana á yfir hundrað sýningum, sem var mun meira en búist var við. Sýningin heldur áfram í haust fyrir þá sem eiga enn eftir að berja þessa stórskemmtilegu einkaspæjara augum. - fb
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira